Tveir þriðju íbúa við Mývatn leggjast gegn hótelbyggingu

Liðlega tvö hundruð íbúar í Mývatns­sveit lýsa andstöðu við að byggt verði hótel á bakka Mývatns við Hótel Reykja­hlíð. Framkvæmdin er sögð ganga gegn anda laga um verndun Mývatns og Laxár. Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu.

Byggingin er samkvæmt teikningu öll langt innan 200 metra verndar­línu laganna. Íbúarnir telja að hún muni spilla útsýni til vatnsins og ímynd sveitarinnar. Samþykkt áformanna skapi hættulegt fordæmi varðandi framkvæmdir á verndar­svæðinu.

Undir­skriftum var safnað meðal íbúa með lögheimili í Skútu­staðahreppi sem eru 18 ára og eldri. Samtals skrifuðu 202 eða 66 prósent íbúanna undir. Fimmtíu og átta, eða 19 prósent höfnuðu þátttöku. Ekki náðist til 45 íbúa og nokkrir tóku ekki þátt vegna trúnaðar­starfa sem þeir hafa með höndum. Samtals eru það um 15 prósent íbúa, segir í tilkynningunni.

Söfnun undir­skrifta hófst laugar­daginn 25. júní en lauk 12. júlí þegar Yngvi Ragnar Kristjánsson, oddviti hrepps­nefndar tók við undir­skrifta­listunum úr hendi Ásdísar Illuga­dóttur.

Yngvi Ragnar þakkaði söfnurum undir­skriftanna fyrir að sýna málefnum sveitar­félagsins áhuga. Auðvitað verði hlustað á það sem verulegur meirihluti íbúanna segi. „Við undir­rituð, íbúar í Skútu­staðahreppi, leggjumst gegn áformaðri byggingu við Hótel Reykja­hlíð. Byggingin gengur gegn anda laga um verndun Mývatns og Laxár þar sem 200 metra bakki er friðaður. Hún spillir útsýni til vatnsins og er brot á þeirri reglu að hefja atvinnu­rekstur ekki vatns­megin vegar. Þótt talað sé um viðbyggingu er öllum ljóst að hér er annað og meira á ferðinni. Samþykki fyrir­liggjandi deilu­skipulags­tillögu myndi setja hættulegt fordæmi. Við skorum því á sveitar­stjórn og skipulags­nefnd að stöðva þegar í stað umfjöllun um hana,“ sagði í textanum sem fólk undir­ritaði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár