Erfiðar viðræður um björgunarpakka ESB framundan

Aðildar­ríki Evrópu­sambandsins munu reyna að sammælast um björgunar­pakka vegna efna­hags­legra afleiðinga COVID-19 faraldursins næsta föstudag. Búist er við erfiðum viðræðum þar sem mikill ágrein­ingur ríkir milli landa um stærð og eðli útgjald­anna.

Charles Michel, formaður leiðtogaráðs ESB, á blaðamannafundi síðasta föstudag.
Charles Michel, for­maður leið­toga­ráðs ESB, á blaða­manna­fundi síð­asta föstu­dag. Mynd: Leiðtogaráð ESB

Leiðtogar aðildar­ríkja ESB munu hittast í Brussel næsta föstudag til að ræða tillögur Charles Michel, forseta leiðtoga­ráðs sambandsins, um fjárlög til næstu sex ára auk stærðar sameiginlegs björgunar­pakka vegna COVID-19 efnahagskrísunnar. Ekki ríkir einhugur um þessar aðgerðir, en Michel hefur reynt að komast til móts við aðildar­ríki sem setja sig upp á móti auknum útgjöldum með tillögunum sínum .

Fyrsti fundur frá COVID

Michel boðaði til fundarins með frétta­tilkynningu síðasta föstudag, en hann verður sá fyrsti í marga mánuði frá upphafi COVID-19 faraldursins.

Mikið mæðir á sambandinu vegna efnahags­áfalla í kjölfar útbreiðslu kórónu­veirunnar, en Michel segir í fundar­boði sínu að ESB stefni að jöfnun kjara milli ríkja, aukinni þraut­seigju og umbreytingu á hagkerfum aðildar­ríkjanna í björgunar­pakkanum sínum. Sökum stærðar pakkans vill Michel breyta fjárhags­áætlun sambandsins til langs tíma samhliða pakkanum, og verður hún því einnig til umræðu á fundinum.

Sparsami kvartettinn

Á undan­förnum mánuðum hafa öll áform um aukningu á sameiginlegum útgjöldum Evrópu­sambandsins mætt mikilli andstöðu frá ríkis­stjórnum Danmerkur, Svíþjóðar, Hollands og Austur­ríkis.

Leiðtogar ríkjanna fjögurra, sem kalla sig „sparsama kvartettinn“ (e. the frugal four), segjast vilja hlífa skatt­borgurum fyrir meiri kvöðum frá Evrópu­sambandinu. Auk þess vilja þau meina að sambandið ætti að „sníða stakk eftir vexti“ og passa enn frekar upp á útgjalda­aukningu í kjölfar útgöngu Bretlands fyrr í ár.

Þegar ESB tilkynnti svo að fyrir­hugaður björgunar­pakki vegna COVID-krísunnar myndi nema um 700 milljörðum evra, sem að hluta til yrði fjár­magnaður með sameiginlegum skulda­bréfum, mótmælti Mark Rutte, forsætis­ráðherra Hollands, því einnig harðlega:

„Við leggjum algjöra áherslu á að ESB þurfi að nota peninginn sinn með skyn­samlegum hætti... við viljum ekki að nettó­framlög ríkjanna hækki sem afleiðingu af Brexit og COVID-krísunnar,“ sagði Rutte síðasta fimmtudag.

Ósátt með tillögurnar

Michel hefur reynt að komast til móts við ákall sparsama kvartettsins, en nýjar tillögur hans fela meðal annars í sér 26 milljarða evra niður­skurð í langtíma­fjárhags­áætluninni, auk sérstakar niður­greiðslu til aðildar­ríkjanna fjögurra og Þýska­lands.

Samkvæmt umfjöllun Politico um málið vöktu tillögurnar reiði ýmissa hagsmuna­aðila, en niður­skurðurinn fæli í sér minni fjárútlát til margra sameiginlegra verkefna Evrópu­sambandsins í rann­sóknum, þróunar­starfsemi og landamæra­vörslu.

Leiðtogar annarra aðildar­ríkja hafa einnig gagnrýnt seinagang Evrópu­sambandsins í að fá björgunar­pakka samþykktan. Pedro Sánchez, forsætis­ráðherra Spánar, undir­strikaði mikilvægi skjótra aðgerða í þessum efnum með eftir­farandi Twitter-færslu í síðasta mánuði, þar sem hann sagði yfir­vofandi kreppu á Evru­svæðinu verða dýpri eftir því sem útgáfa björgunar­pakkans drægist á langinn:

„Rétta jafnvægið“

Að sögn Michel verður nauðsynlegt fyrir aðildar­ríkin „að finna rétta jafnvægið“ til þess að komast að pólitísku samkomu­lagi á fundinum næst­komandi föstudag. Óvíst er hvort þetta jafnvægi náist á fundinum, en Politico hefur eftir heimildar­mönnum sínum að þörf sé á öðrum fundi í lok mánaðarins til að miðla málum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár