Þórólfur í sóttkví vegna smits á sóttvarnasviði

Covid-smit hefur komið upp á sóttvarna­sviði hjá embætti land­læknis.

Þórólfur Guðnason
Þórólfur Guðnason Hefur verið lyk­il­maður í við­brögðum yfir­valda við covid-far­aldr­inum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir er kominn í sóttkví eftir að covid-smit kom upp hjá sóttvarna­sviði embættis land­læknis. 

Þrír starfs­menn sviðsins eru komnir í sóttkví. 

Þórólfur bíður nú niður­stöðu sýnatöku sem fór fram í dag. Hann fer í fimm daga sóttkví og í aðra sýnatöku á fimmta degi.

Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá embætti land­læknis.

Á sama tíma er Víðir Reynisson, yfir­lögreglu­þjónn almanna­varna, kominn úr einangrun eftir að hafa fengið í sig covid-smit.

Skömmu eftir að tilkynningin var send gaf Þórólfur út yfir­lýsingu um frétta­flutning dagsins af töfum á bólu­setningu þjóðarinnar. 

„Að gefnu tilefni vill sóttvarna­læknir taka fram að á þessari stundu liggja einungis fyrir áreiðanlegar upplýsingar um afhendingu fyrstu skammta bóluefnis frá Pfizer. Á upplýsinga­fundi í morgun mátti skilja á orðum mínum að ekki væri að vænta bóluefna frá öðrum fram­leiðendum fyrr en á síðari hluta næsta árs. Þetta var ofsagt. Ísland hefur þegar tryggt sér kauprétt á bóluefni fyrir um 60–70% þjóðarinnar en ekki liggur enn fyrir hvenær og hversu mikið bóluefni kemur í hverri sendingu. Áætlanir fram­leiðenda munu skýrast þegar fram í sækir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár