Þriðji orkupakkinn úr utanríkismálanefnd

Málið um þriðja orku­pakk­ann hefur verið tekið úr utan­rík­is­mála­nefnd og mun það vera tekið til umræðu á Alþingi á morgun.

Á fundi utan­rík­is­mála­nefndar í dag var tekin ákvörðun um að taka málið um þriðja orku­pakk­ann úr nefnd­inni og taka málið til umræðu á morgun þriðju­dag. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Mið­flokknum.

Tillagan var sam­þykkt með öllum atkvæðum nema einu, atkvæði Mið­flokks­ins. Samkvæmt til­kynn­ing­unni er einn dagur gef­inn til þess að leggja fram minni­hluta­á­lit.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, vara­for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður VG, stað­festir þetta í sam­tali við Kjarnann en hún segir að þing­legri með­ferð nefnd­ar­innar fyrir seinni umræðu sé nú lokið og þess vegna hafi málið verið tekið úr nefnd­inni. Engu hafi verið við að bæta á þessu stigi máls­ins.

„Gesta­komur klár­uð­ust sem sagt á föstu­dag­inn og var nefnd­ar­á­litið unnið um helg­ina og sam­þykkt í dag,“ segir hún. Næst á dag­skrá séu umræður á Alþingi.

Óánægja meðal Miðflokksmanna

„Það er skoðun þing­manna Mið­flokks­ins að máls­með­ferðin sé með öllu óboð­leg. Hér er um að ræða afar þýð­ing­ar­mikið mál sem varðar mikla þjóð­ar­hags­muni. Nefnd er tekur slíkt mál til umfjöll­unar ber að kynna sér sjón­ar­mið allra þeirra er þekk­ingu hafa á slíkum málum, annað er Alþingi lítt til sóma.

Það má ljóst vera að ætl­unin er að þröngva mál­inu í gegnum Alþingi á sem skemmstum tíma þrátt fyrir að málið valdi mörgum áhyggjum og mikil and­staða sé við það meðal þjóð­ar­innar,“ segir í til­kynn­ingu Mið­flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár