Minni samdrætti spáð í ESB en á Íslandi

Lands­framleiðsla dróst saman um rúm sex prósent í aðildar­ríkjum ESB í fyrra að meðaltali. Samdrátt­urinn var minnstur í Norður-Evrópu en mestur í Miðjarðar­hafs­löndunum.

Nýjustu tölur Eurostat benda til þess að Spánn hafi komið verst allra Evrópulanda úr yfirstandandi kreppu.
Nýjustu tölur Eurostat benda til þess að Spánn hafi komið verst allra Evr­ópu­landa úr yfir­stand­andi kreppu. Mynd: Pexels - Alex Azabache

Samdráttur í lands­framleiðslu hjá aðildar­ríkjum Evrópu­sambandsins (ESB) nam 6,4 prósentum í fyrra, samkvæmt frétta­tilkynningu frá Eurostat í gær. Þetta er minni samdráttur en búist er við að hafi átt sér stað hér á landi, en Hagstofan áætlar að hann hafi numið 7,6 prósentum.

Kreppan minnst í norðri

Í tilkynningu sinni birti Eurostat einnig áætlaðar tölur um lands­framleiðslu í fyrra á meðal 10 aðildar­ríkja ESB. Samkvæmt þeim var samdrátturinn í fyrra minnstur í Norður-Evrópu en annars staðar í álfunni, en lands­framleiðsla dróst aðeins saman um 1 til 3,5 prósent í Lettlandi, Svíþjóð og Litháen.

Höggið þyngra í Mið-og Suður-Evrópu

Samdrátturinn var nokkuð meiri í Þýska­landi, Tékklandi og Austur­ríki, en þar var hann á bilinu 5,3 til 7,4 prósent. Það er þó minni samdráttur en búist er við á Íslandi, en samkvæmt þjóð­hagsspá Hagstofu má gera ráð fyrir að lands­framleiðsla hér dragist saman um 7,6 prósent.

Ísland væri frekar í flokki Miðjarða­hafs­landanna, sem koma verst allra aðildar­ríkja Evrópu­sambandsins úr kreppunni sem hófst í fyrra. Í Portúgal, Frakk­landi, Ítalíu og á Spáni dróst lands­framleiðsla saman um 7,6 til 11 prósent í fyrra, samkvæmt tölum Eurostat. Muninn á samdrættinum milli landa má sjá á mynd hér að ofan.

Þriðji fjórðungurinn þungur á Íslandi

Ef þróun lands­framleiðslu er skoðuð á milli ársfjórðunga kemur Ísland ágætlega vel út í saman­burði við Evrópu­sambandið á fyrri helmingi ársins. Hins vegar var samdrátturinn rúmlega tvöfalt dýpri hérlendis heldur en hjá ESB á þriðja fjórðungi ársins, þ.e. frá júlí og út september.

Munurinn sést á myndinni hér að ofan, þar sem ársfjórðungs­tölur um lands­framleiðslu innan ESB eru bornar saman við sambærilegar tölur hérlendis frá Hagstofu. Hagvöxtur á fjórða ársfjórðungi hérlendis er svo metinn útfrá þjóð­hagsspá Hagstofu um hagvöxt á árinu 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár