Bjóða forsætisráðherra aðstoð sína

Formenn Við­reisnar og Sam­fylk­ing­ar­innar hafa sent Katrínu Jak­obs­dóttur bréf þar sem þau minna á „mik­il­vægi EES-samn­ings­ins fyrir íslenskt sam­fé­lag, heim­ili og fyr­ir­tæki“ og í því sam­hengi mik­il­vægi þess að afgreiða þriðja orku­pakk­ann hið snarasta.

Logi Einarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Logi Ein­ars­son og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Mynd: Samsett mynd

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar og Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hafa sent Katrínu Jak­obs­dóttur bréf þar sem þau minna á „mik­il­vægi EES-samn­ings­ins fyrir íslenskt sam­fé­lag, heim­ili og fyr­ir­tæki“ – og í því sam­hengi mik­il­vægi þess að afgreiða þriðja orku­pakk­ann hið snarasta.

Frá þessu greinir Þor­gerður Katrín í stöðu­upp­færslu á Facebook.

Fyrir hönd Við­reisnar og Sam­fylk­ingar bjóða þau for­sæt­is­ráð­herra aðstoð sína og lofa þau að gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja fram­gang máls­ins á Alþingi.

Í færsl­unni segir Þor­gerður Katrín að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hafi í enn eitt skiptið frestað að leggja fram á Alþingi til­lögu til þings­á­lykt­unar um stað­fest­ingu á þriðja orku­pakk­anum. „Ítrekað hefur verið full­yrt að til­lagan verði lögð fram í síð­asta lagi á þingi í lok febr­úar 2019. Í dag er 5. mars og enn er talað um að taka þurfi tíma,“ segir hún.

Hún segir enn fremur að öllum sé ljóst að erf­ið­leikar séu innan rík­is­stjórnar við að koma fram með málið. Flest bendi til þess að ekki sé meiri­hluti fyrir mál­inu á þingi á meðal rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

Til stóð að leggja fram þing­mál í fe­brú­ar á þessu ári um sam­þykkt svo­nefnds þriðja orku­pakka Evr­ópu­sam­bands­ins vegna aðild­ar Íslands að EES-samn­ingn­um. Þetta kom fram í þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­inn­ar vegna þing­vetr­ar­ins sem nú stendur yfir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár