Hætta ekki fyrr en stóriðja í Helguvík stöðvast

Mikill áhugi var á fundi í Reykja­nesbæ um stóriðju í Helguvík.

Þungt hljóð var í fundar­gestum í Stapanum í gær þar sem rætt var um málefni United Silicon og kísil­verksmiðju þess í Helguvík. Á þriðja hundrað manns mættu á fundinn en Andri Snær Magnason rithöfundur var einn þeirra sem hélt tölu á fundinum.

Í viðtali við Frétta­blaðið segir hann að þriðjungur gesta á fundinum hefði staðið upp, þegar borin var upp spurning um hverjir fyndu fyrir veikindum eftir að verksmiðjan hóf starfsemi. Á fundinum var samþykkt ályktun um að biðla til almanna­varna að grípa til aðgerða vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í bænum. „Fólki var mikið niðri fyrir. Margir lýstu auknum veikindum eftir að verksmiðjan kom og aðrir bentu á að ekki væri óhætt lengur að hleypa börnum út að leika,“ segir Andri Snær í viðtali við Frétta­blaðið.

„Næsta skref er að hrinda af stað alþjóðlegri söfnun fyrir Félag andstæðinga stóriðju í Helguvík,“ segir Einar Már Atlason, formaður félagsins, en það stóð fyrir fundinum.

United Silicon óskaði eftir greiðslu­stöðvun 14. ágúst síðastliðinn, en áform eru uppi um að stöðva rektur kís­il­málm­verk­smiðju United Sil­icon í Helgu­vík 10. sept­em­ber næst­kom­andi til að gera umbætur á bún­aði henn­ar.

Alls hafa þrír íslenskir líf­eyr­is­sjóðir fjár­fest í United Sil­icon fyrir 2.166 millj­ónir króna. Sjóð­irnir sem um ræðir eru Festa líf­eyr­is­­sjóð­ur, Frjálsi líf­eyr­is­­sjóð­ur­­inn og Eft­ir­­launa­­sjóður fé­lags ís­­lenskra at­vinnu­flug­­manna (EFÍA).

Þá hefur Arion banki hefur fært niður 16,3 pró­sent eign­ar­hlut sinn í United Sil­icon að fullu í bókum sín­um. Bank­inn er auk þess með átta millj­arða króna útistand­andi við félag­ið, þar með talið lánslof­orð og ábyrgð­ir. Nið­ur­færslu­þörf á þeim lánum er enn óljós og háð fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu United Sil­icon.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár