Tæpir 30 milljarðar í styrki til bænda

Á síðasta ári nam beinn og óbeinn stuðningur ríkis­sjóðs við íslenskan landbúnað 29,1 milljarði króna. Hagfræði­prófessor telur óhætt að líta svo á að sú tala séu lægri mörk raun­verulegs stuðnings.

Beinir styrkir 16 milljarðar
Beinir styrkir 16 millj­arðar Íslenskir bændur fengu 16,3 millj­arða í beina styrki á síð­asta ári og 12,8 millj­arða í mark­aðs­stuðn­ing, að lág­marki. Mynd: Shutterstock

Stuðningur ríkis­sjóðs Íslands við íslenskan landbúnað á síðasta ári nam að minnsta kosti tæpum 30 milljörðum króna, þegar bæði beinir og óbeinir styrkir eru teknir saman. Beinir styrkir úr ríkis­sjóði til bænda námu 16,3 milljörðum króna en óbeinn stuðningur, markaðs­stuðningur sem skapast með hærra vöruverði til neytenda vegna toll­verndar og innflutnings­takmarkana, nam 12,8 milljörðum króna.

Þetta kemur fram í nýlega birtu svari Þórólfs Matthíassonar hagfræði­prófessors á Vísinda­vefnum. Svarið byggir á styrkja­greiningar­kerfi OECD um jafngildis­virði fram­leiðenda­styrkja. Niður­staða útreikninganna sýna að fram­leiðenda­styrkir nemi 57 prósentum af heildar­verðmæti innlendrar land­búnaðar­framleiðslu.

Í svari Þórólfs má sjá að dregið hefur úr heildar­verðmæti innlendrar land­búnaðar­framleiðslu frá árinu 1986, sem er upphafs­punktur upplýsinganna sem birtar eru, um tæpa 22 milljarða króna á verðlagi ársins 2020, eða um 40 prósent. Þá hefur markaðs­stuðningur dregist saman um 70 prósent á sama tímabili en beinir styrkir hafa lækkað um 20 prósent. Heildar­stuðningur við innlendan landbúnað fór lækkandi til ársins 2010, frá árinu 1986, en hefur hækkað frá árinu 2010.

Sem fyrr segir má slá því föstu að styrkir til bænda hafi á síðasta ári numið 29,1 milljarði króna. Þórólfur nefnir hins vegar að þar með sé öll sagan ekki sögð. Reikni­aðferðir OECD taki aðeins til ákveðinna þátta, það er þess sem tengist hverju býli fyrir sig. Auk innflutnings­takmarkana sem skapi markaðs­styrkina búi úrvinnslu­greinar land­búnaðar við undanþágur frá samkeppnis­lögum, sem geri þeim kleift að stunda sín viðskipti með hætti sem aðilar í samkeppnis­rekstri hafi ekki tök á. Vísbendingar séu um að slíkir viðskipta­hættir þrýsti upp verði á fram­leiðslu afurða­stöðva í land­búnaði.

Þá sé ekki tekið tillit til þess að bændur hafi gjald­frjálsan aðgang að afréttum, sem þeir hafi nýtt með ósjálfbærum hætti. „Líklega ber því að líta á þá niður­stöðu að íslenskur land­búnaður fái tæplega 30 milljarða meðgjöf frá skatt­greiðendum og neytendum sem lægri mörk hins raun­verulega stuðnings.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár