Deildar meiningar um samkeppnishæfni til framtíðar þrátt fyrir óháða úttekt

Samtök álfram­leið­enda segja að þrátt fyrir að niður­stöður óháðrar úttektar sýni að raforku­verð til álvera sé almennt ekki að skerða samkeppnis­hæfni þeirra við önnur Vestur­lönd, sé í skýrslunni ekki tekin afstaða til þess verðs sem býðst í dag.

Búrfellsvirkjun. Tekist hefur verið á um raforkuverð Landsvirkjunar á opinberum vettvangi undanfarin misseri og líklegt er að sú umræða haldi áfram.
Búr­fells­virkjun. Tekist hefur verið á um raf­orku­verð Lands­virkj­unar á opin­berum vett­vangi und­an­farin miss­eri og lík­legt er að sú umræða haldi áfram. Mynd: Landsvirkjun

Þeir aðilar sem hafa deilt um samkeppnis­hæfni orku­sækins iðnaðar hér á landi að undan­förnu virðast líklegir til þess að halda áfram að takast á um málefnið, nú þegar úttekt hefur verið gerð af óháðu greiningar­fyrirtæki, sem sýnir fram á að raforku­kostnaður stór­notenda á Íslandi skerði ekki samkeppnis­hæfni þeirra gagnvart fyrir­tækjum í Kanada, Noregi og Þýska­landi.

„Samkeppnis­hæfni hlýtur að taka mið af núverandi stöðu og framtíðar­horfum,“ segir í frétta­tilkynningu frá Samáli, samtökum álframleiðenda á Íslandi, sem benda á að í skýrslu greiningar­fyrir­tækisins Fraunhofer sé ekki tekin afstaða til þess hvort það orkuverð sem býðst á Íslandi í dag sé samkeppnis­hæft, auk þess sem bent sé á að einstaka raforku­samningar hér á landi gætu haft áskoranir í för með sér fyrir fyrirtæki.

„Þessi niður­staða stað­festir það sem við hjá Lands­virkjun höfum talið okkur vita, að við bjóðum grænu orkuna okkar á samkeppnis­hæfu verði. Það er gott að fá það staðfest af sérfróðum, óháðum aðila,“ er hins vegar haft eftir Herði Arnarsyni, forstjóra Lands­virkjunar, í frétta­tilkynningu.

Þar er þess einnig getið að Lands­virkjun hafi haft vilja til þess að opinbera frekari upplýsingar um orku­kostnað álvera en koma fram í skýrslunni, en haft var samráð við alla aðila um fram­setningu niður­staðna og komu fram athuga­semdir sem tekið var tillit til, enda gögnin sem liggja að baki veitt í trúnaði.

Samál segir að ekki hafi verið horft til ákveðinna þátta í saman­burðinum, sem geti haft áhrif á samkeppnis­hæfni auk raforku­verðsins. Samanburðar­ríkin þrjú búi til dæmis yfir öflugum heima­markaði, öfugt við Ísland, sem skapi skilyrði fyrir öfluga virðis­aukandi áfram­vinnslu. Samtökin lýsa eigi að síður ánægju með að ráðist hafi verið í þessa úttekt og sömuleiðis yfir­lýsingar Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfa­dóttur ráðherra um að endur­skoða eigi flutnings­kerfi raforku með samkeppnis­hæfni að leiðar­ljósi.

Staðfesting á því að verðstefnan hafi ekki neikvæð áhrif

Haft er eftir forstjóra Lands­virkjunar í tilkynningu að fyrir­tækið hafi lagt sig fram um náið samstarf við viðskipta­vini sína og sé ávallt reiðubúið að skoða hvaða leiðir eru færar til að ná hagstæðri niður­stöðu fyrir báða aðila.

„Við reynum að leggja okkar af mörkum með því að sýna sveigjanleika m.a. í verði og styðja þannig við rekstur þeirra við þessar krefjandi aðstæður. Það er hins vegar gott að fá stað­festingu á því að verð­stefna okkar hafi ekki neikvæð áhrif á samkeppnis­hæfni viðskipta­vina okkar á stórnotenda­markaði. Ég er líka sann­færður um að endurnýjanlega orkan gefur okkur samkeppnis­forskot til framtíðar, nú þegar sífellt fleiri leita umhverfis­vænna leiða í orkumálum,“ er haft eftir Herði.

Í tilkynningu Lands­virkjunar er einnig bent á að í skýrslu Fraunhofer komi fram að álver hér á landi þurfi meiri orku en ella til fram­leiðslu sinnar, þar sem þau búi ekki yfir allra nýjasta búnaði og tækni. Hörður segir áhyggju­efni að sama þróun hafi ekki orðið á Íslandi í Noregi, þar sem álver hafi náð að lækka orku­notkun sína umtals­vert á hvert framleitt tonn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár