Syriza tveimur sætum frá hreinum meirihluta í Grikklandi

Róttæki vinstri­flokkurinn Syriza, sem hefur heitið því að binda enda á það sem hann kallar niður­lægingar­tímabil Grikk­lands, vann stórsigur í grísku þing­kosningunum í gær. Þegar búið var að telja um 80 prósent atkvæða hafði flokkurinn fengið um 36 prósent atkvæða sem tryggir honum væntanlega 149 af 300 sætum á gríska þinginu. Syriza er því einungis tveimur sætum frá hreinum meirihluta.

Flokkur Antonis Samaras, núverandi forsætis­ráðherra, fékk um 29 prósent atkvæða. Samaras hefur þegar hringt í Alexis Tsipras, leiðtoga Syriza, til að óska honum til hamingju með sigurinn. Þetta kemur fram í frétt hjá Reuters-frétta­stofunni.

Flokkur Antonis Samaras, núverandi forsætis­ráðherra, fékk um 29 prósent atkvæða.

Ólga innan Evrópusambandsins


Ljóst er að sigur Syriza mun valda mik­ill ólgu innan Evr­ópu­sam­bands­ins enda hefur Tsipras ítrekað lýst því yfir að hann vilji end­ur­semja um end­ur­greiðslur á him­in­háum neyð­ar­lánum sem Grikkir fengu í kjöl­far efna­hags­hruns síns. Lánin eru hluti af víð­tæku sam­starfi Grikk­lands við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn, Evr­ópu­sam­bandið og Seðla­banka Evrópu. Tsipras sagði við stuðn­ings­menn sína í gær, eftir að sig­ur­inn var ljós, að tími aðhalds­að­gerða í rík­is­rekstri, sem hafa verið skil­yrði lán­veit­ing­anna, sé lið­inn. Nú verði sam­starf­inu hætt og samið upp á nýtt.

Flokkur Antonis Samaras, núverandi forsætisráðherra, fékk um 29 prósent atkvæða.
Flokkur Antonis Samaras, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, fékk um 29 pró­sent atkvæða.

Tsipras sagði við stuðnings­menn sína í gær, eftir að sigurinn var ljós, að tími aðhalds­aðgerða í ríkis­rekstri, sem hafa verið skilyrði lánveitinganna, sé liðinn. Nú verði samstarfinu hætt og samið upp á nýtt.

Tsipras sagði við stuðningsmenn sína í gær, eftir að sigurinn var ljós, að tími aðhaldsaðgerða í ríkisrekstri, sem hafa verið skilyrði lánveitinganna, sé liðinn. Nú verði samstarfinu hætt og samið upp á nýtt.
Tsipras sagði við stuðn­ings­menn sína í gær, eftir að sig­ur­inn var ljós, að tími aðhalds­að­gerða í rík­is­rekstri, sem hafa verið skil­yrði lán­veit­ing­anna, sé lið­inn. Nú verði sam­starf­inu hætt og samið upp á nýtt.

Margir leiðtogar helstu Evrópu­sambands­ríkja óttast að niður­staðan muni valda efnahagslegri ólgu í álfunni og að önnur ríki innan sambandsins sem eiga í miklum efnahags­vanda muni ákveða að fara sömu leið og Gríkkir. Það gæti ógnað framtíð evru-samstarfsins.

Þessi ótti kom bersýni­lega fram í Twitter-færslu David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, í nótt. Þar sagði hann að sigur Syriza muni auka efnahags­lega óvissu um alla Evrópu.

The Greek election will increase economic uncertainty across Europe. That's why the UK must stick to our plan, delivering security at home.

— David Cameron (@David_Cameron) January 25, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár