Kjarninn fylgir Startup Reykjavík viðskiptahraðlinum eftir

Kjarninn mun fylgja eftir Startup Reykjavík viðskipta­hraðlinum í sumar, með mynd­böndum, þar sem einblínt er á verkefnin sem unnið er að og ýmis önnur atriði sem tengjast frumkvöðla­vinnunni sem hraðallinn tekur til. Tíu teymi hafa verið val­in til þátt­töku en alls bár­ust um 150 um­sókn­ir. Hraðall­inn var ný­verið val­inn besti viðskipta­hraðall Norður­land­anna á Nordic Startup Awards í Finnlandi og fer fram í fjórða sinn í sum­ar á veg­um Ari­on banka og Klak Innovit.

https://vimeo.com/130737735

Verk­efn­in sem val­in hafa verið til þátt­töku í Startup Reykja­vík nú í sum­ar:


  • Wasa­bi Ice­land - Ætla að rækta hágæða wasa­bi á Íslandi með því að nýta hreint vatn og end­ur­nýj­an­lega orku

  • Kvas­ir software - Munu nú­tíma­væða borðspil þar sem sím­inn þinn er stjórn­tækið og sjón­varpið borð­spilið

  • Farma - Teng­ir sam­an ra­f­ræn skil­ríki og ra­f­ræna lyf­seðla. Fólk get­ur keypt lyf á net­inu með ör­ugg­um hætti og fengið sent heim

  • Vik­ing Cars - Vett­vang­ur til þess að deila bíln­um sín­um með öðrum með ör­ugg­um hætti - þetta er eins og Airbnb fyr­ir bíla

  • Spor í sand­inn - Munu byggja sjálf­bært vist­kerfi í hjarta borg­ar­inn­ar sem býður upp á nýja upp­lif­un í ferðaþjón­ustu

  • Genki instruments – Eru að þróa ný­stár­leg raf­tón­list­ar­hljóðfæri sem tengja má sam­an með áður óséðum hætti

  • Three42 - Hug­búnaður sem tek­ur við upp­lýs­ing­um úr bíln­um þínum og teng­ir beint við snjallsím­ann

  • Delp­hi - Nýta þekk­ingu fjöld­ans til þess að spá fyr­ir um til­tekna viðburði í fram­tíðinni

  • Floori - Hugbúnaður sem hjálpar kennurum að skilja og meta árangur nemenda með því að bjóða upp á spurningar í gegnum vef og snjall­síma

  • Hún / Hann Brugg­hús - Stefna að því að búa til hágæða bjór úr ís­lensk­um hrá­efn­um


Teymun­um tíu sem val­in hafa verið til þátt­töku verður lagt eft­ir­far­andi til,:

  • Tvær millj­ón­ir í hluta­fé frá Ari­on banka gegn 6% hlut­deild í fyr­ir­tæk­inu

  • 10 vikna þjálf­un/​ráðgjöf frá men­tor­um víðs veg­ar að úr at­vinnu­líf­inu

  • Sam­eig­in­leg aðstaða allra viðskiptateym­anna

  • Tæki­færi til að kynna sig og verk­efni sín fyr­ir fjár­fest­um á loka­degi verk­efn­is­ins.


Þetta er annað árið í röð sem Kjarninn fylgir Startup Reykja­vík náið eftir, en allt frá stofnun Kjarnans hefur mikil áhersla verið lögð á nýsköpun og frum­kvöðla­starf­semi ýmis konar, í efn­is­tökum, og það sama má með segja um lítil og með­al­stór fyr­ir­tæki.

Startup Reykjavík er samstarfs­verkefni Arion banka og Klak Innovit, og eru mynd­böndin unnin í samstarfi við hraðalinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár