Síðasta kórónuveiruverk Svandísar að bregðast við „Ómíkrón“

Á sunnudag tekur gildi reglugerð sem felur í sér að þeir sem koma til landsins frá skilgreindum hááhættu­svæðum þurfa að fara í tvö PCR-próf með sóttkví á milli. Ómíkrón-afbrigðið veldur áhyggjum víða um heim og líka hjá sóttvarna­lækni.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur undirritað reglugerð sem markar fyrstu viðbrögð íslenskra stjórnvalda við hinu svokallað Ómíkrón-afbrigði veirunnar.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur und­ir­ritað reglu­gerð sem markar fyrstu við­brögð íslenskra stjórn­valda við hinu svo­kallað Ómíkrón-afbrigði veirunnar. Mynd: Heilbrigðisráðuneytið

Reglugerð um aðgerðir vegna kórónu­veirunnar á landa­mærum var breytt í dag, og elti Ísland þar með fleiri ríki hins vestræna heims sem hafa gripið til aðgerða vegna ótta við útbreiðslu nýs afbrigðis kórónu­veirunnar sem hefur fengið nafnið „Ómíkrón“. Afbrigðið hefur til þessa aðallega greinst í ríkjum í syðsta hluta Afríku og taka aðgerðir íslenskra stjórn­valda mið af því.

Til nýskilgreindra „hááhættusvæða“ teljast nú Afríku­ríkin Botsvana, Esvatíní, Lesótó, Mósambík, Namibía, Simbabve og Suður-Afríka. Allir sem koma til landsins og hafa dvalið meira en sólar­hring í þessum ríkjum 14 daga fyrir komuna til Íslands þurfa að fara í PCR-próf við komuna og svo í sóttkví, sem lýkur með öðru PCR-prófi fimm dögum síðar.

„Þetta gildir um alla sem dvalið hafa á hááhættusvæði, hvort sem þeir eru bólu­settir eða ekki eða með sögu um fyrri sýkingu af Covid-19. Þessir einstaklingar þurfa jafnframt að framvísa neikvæðu Covid-prófi við byrðingu erlendis fyrir komuna til Íslands (þó að undan­skildum þeim sem eru með tengsl við Ísland). Enn fremur ber þeim að fylla út rafrænt forskráningar­eyðublað þar sem m.a. kemur fram hvar þau hyggjast dvelja í sóttkví á Íslandi,“ segir í tilkynningu á vef stjórnar­ráðsins, en reglugerð sem Svandís Svavars­dóttir hefur undir­ritað um þetta efni tekur gildi á morgun, sunnudag.

Telja má líklegt að undir­ritun þessarar reglu­gerðar verði síðasta embættis­verkið sem Svandís Svavars­dóttir sinnir sem heilbrigðis­ráðherra, en samkvæmt heimildum Kjarnans mun heilbrigðis­ráðuneytið verða í höndum Framsóknar­flokksins á þessu kjör­tímabili.

Auk breyttrar reglu­gerðar hefur Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir jafnframt gefið út tilmæli þar sem Íslendingar eru hvattir til að ferðast ekki til þessara landa, óháð bólu­setningar­stöðu eða sögu um fyrri sýkingu af völdum Covid-19.

Virðist dreifast mun hraðar en Delta

Grunur er um að þetta nýja afbrigði veirunnar hafi þegar náð að skjóta einhverjum rótum í Evrópu­ríkjum. Tvö smit þessa afbrigðis hafa greinst í Bretlandi, samkvæmt blaðamanna­fundi forsætis­ráðherrans Borisar Johnsons í dag, og afbrigðið hefur auk þess greinst í Belgíu.

Auk þess er grunur um að Ómíkrón-afbrigðið hafi greinst í Þýska­landi, Hollandi og Tékklandi, hið minnsta, samkvæmt fréttum evrópskra miðla í dag.

Í minnis­blaði sóttvarna­læknis segir að „miklar áhyggjur“ hafi vaknað í alþjóða­samfélaginu um að „hér geti verið komið fram nýtt og stökk­breytt afbrigði SARS-CoV-2 sem hefur aukna smithæfni, veldur hugsanlega alvarlegri sýkingu og kemst undan verndandi áhrifum bóluefna og fyrri sýkinga af völdum COVID-19. Þetta á hins vegar eftir að staðfesta frekar. Afbrigðið virðist dreifast mun hraðar en Delta-afbrigðið gerir.“

Sóttvarna­læknir segir þó að vonandi verði hægt að endur­skoða aðgerðir á landa­mærum sem fyrst, „þegar gleggri niður­stöður fást varðandi þá hættu sem af ofan­greindu afbrigði stafar.“

„Þess ber þó að geta að einnig gæti þurft að herða aðgerðir, allt eftir hvernig upplýsingum og rann­sóknum varðandi Omicronafbrigðið vindur fram,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarna­læknir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár