Ótvíræður meirihluti á Alþingi fyrir frekari virkjunum og breytingum í sjávarútvegi

Formaður Viðreisnar segir að andstaða Vinstri grænna gegn virkjunum og varðstaða Sjálfstæðis­flokks um fisk­veiðis­stjórn­un­ar­k­efið komi í veg fyrir að sá vilji Alþingis í þeim málum nái fram að ganga. Hún kallar eftir mála­miðlun.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir, formaður Viðreisnar, segir að meirihluti sé fyrir því á þingi að ráðast annars vegar í frekari virkjana­gerð í samræmi við ramma­áætlun og að breyta fiskveiði­stjórnunar­kerfinu.

Í áramóta­grein sinni í Morgun­blaðinu segir hún að það gangi ekki lengur að ýta öllum ágreinings­málum á undan sér vegna tregðu jaðar­flokka í ríkis­stjórninni til að gera mála­miðlanir. Hún leggur því til að annar flokkurinn, Vinstri græn, gefi eftir í andstöðu sinni gagnvart virkjunum gegn því að hinn, Sjálfstæðis­flokkurinn, gefi eftir varðstöðu sína fyrir óbreytt fiskveiði­stjórnunar­kerfi. Fyrir báðum málunum sé ótvíræður meirihluti á Alþingi.

Þorgerður Katrín segir að til þess að vera forystu­ríki í orku­skiptum þurfi Íslendingar að flytja og framleiða meira rafmagn. „Það þurfum við líka að gera til þess að auka verðmæta­sköpun í marg­víslegum hugverka­iðnaði sem byggist á orku­notkun. Þetta vilja allir. En það er ágrein­ingur um leiðir. Það er meirihluti á Alþingi fyrir nauðsyn­legum virkjunum til þess að ná þessu tvíþætta markmiði. Í samræmi við ramma­áætlun. En til þess að hann geti orðið virkur þarf VG að falla frá stífri andstöðu við öll ný skref. Ákvarðanir um þetta þarf að taka á fyrri hluta næsta árs þannig að unnt verði að áfanga­skipta framkvæmdum til ársins 2030. Málþóf milli stjórnar­flokkanna fram yfir mitt kjör­tímabil er of dýru verði keypt.“

Formaður Viðreisnar segir að það sé komið Sjálfstæðis­flokknum að láta af andstöðu við allar breytingar á fiskveiði­stjórnunar­kerfinu í staðinn fyrir framgang í orkumálum. „Það er ríflegur þing­meirihluti fyrir tíma­bindingu veiði­réttarins, eðlilegu gjaldi fyrir einkarétt og nýjum reglum til þess að auka gegnsæi, hindra of mikla samþjöppun og tryggja dreifðari eignar­aðild. Það má líka ætla drjúgan stuðning á þingi við markaðs­gjald fyrir veiði­heimildir en hátt í 90 prósent þjóðarinnar styðja þá leið. Ákvarðanir um þessar mikilvægu breytingar er unnt að taka á vorþinginu samhliða ákvörðunum um nauðsyn­lega orkuöflun. [...] Mála­miðlun af þessu tagi er eina leiðin fyrir nýjan sjávar­útvegs­ráðherra til að komast hjá því að skila sjávar­útvegs­ráðuneytinu í sömu sporum og hún tók við því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár