Hefur fundað um sölu á fjarskiptainnviðum

Þjóðar­öryggisráð hefur fundað vegna áætlana Sýnar, Nova og Símans um að selja eigin fjarskipta­innviði. Samkvæmt ráðinu er full ástæða til að fylgjast með þessari þróun og greina áhættu­þætti tengdum henni.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður þjóðaröryggisráðs
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður þjóðar­ör­ygg­is­ráðs Mynd: Bára Huld Beck

Full ástæða er til þess að fylgjast með fyrir­hugaðri sölu þriggja stærstu fjarskipta­fyrir­tækjanna á eigin innviðum, að mati þjóðar­öryggisráðs. Ráðið hefur fundað um málið og telur einnig ástæðu til að greina áhættu­þætti sem tengjast því. Þetta kemur fram í svari upplýsinga­fulltrúa ríkis­stjórnarinnar við fyrir­spurn Kjarnans.

Mikilvægt að rýna í innviðasölu

Ráðið hefur áður tjáð sig um álitamál tengd sölu á innviðum, en samkvæmt nýlegri skýrslu þess lítur það svo á að það sé nauðsynlegt út frá þjóðar­öryggis­sjónarmiði og allsherjar­reglu að rýna í fjár­festingu í mikil­vægum innviðum samfélagsins, ekki síst erlendri fjár­festingu. Þeirra á meðal eru innviðir í net- og fjarskipta­kerfi, en ráðið telur að hætta geti skapast ef eigendur geta haft áhrif á virkni þeirra.

Stýri­hópur á vegum forsætis­ráðuneytisins skilaði einnig skýrslu í vor um heild­stæða löggjöf varðandi jarðir, land og aðrar fasteignir, en í henni var ítarlega fjallað um rýni á fjár­festingum í innviðum. Samkvæmt henni er mikilvægt að tryggja að fjár­festing á mikil­vægum sviðum í samfélaginu samræmist þjóðar­öryggis­hagsmunum.

Þar er einnig minnst á að í nágranna­ríkjum Íslands hafi megin­stefið verið að stjórn­völd rýni í fjár­festingar á mikil­vægum innviðum, þar á meðal fjarskipta­innviðum, sem gefa fjár­festum áhrifa­stöðu gagnvart þeirri starfsemi.

Nova í eigu fjárfesta frá Alaska

Líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður hafa þrjú stærstu fjarskipta­fyrirtækin hérlendis öll kynnt fyrir­ætlanir sínar um sölu á svokölluðum „óvirkum“ fjarskipta­innviðum sínum til erlendra fjárfesta, sem þeir hyggjast svo ætla að leigja frá þeim.

Fyrr í vikunni samþykkti Samkeppnis­eftirlitið fyrir­hugaðan samruna eignarhalds­félaganna Nova Acquisition Holding og Platínum Nova. Með því verður Nova í eigu fjár­festingar­félagsins PT Capital Advisors, sem hefur höfuð­stöðvar sínar í Alaska.

Með þessum eignar­hlut hafa PT Capital Advisors því eignast helmings­hlut í Senda­félaginu ehf. sem er í eigu Nova og Sýnar og sér um fjarskipta­innviði félaganna beggja. Nova hefur einnig undir­ritað kaup­samning um kaup bandaríska fjár­festingar­félagsins Colony Capital Inc. á öllu hlutafé í öðru dóttur­félagi sínu, Nova Senda­staðir, sem sér um senda­staði, síma­möstur og símaturna félagsins. Kaupin eru nú til yfir­ferðar hjá Samkeppnis­eftirlitinu.

„Við viljum gjarnan selja“

Í ágúst í fyrra sagði Heiðar Guðjónsson forstjóri Sýnar að verið væri að færa meiri rekstur og fjár­festingar í Senda­félagið. Einnig sagði hann að til stæði að bjóða hluta farsíma­kerfisins til sölu, þar sem alþjóð­legir aðilar hefðu mikinn áhuga á fjár­festingum í innviðum símfyrirtækja.

Í lok mars tilkynnti fyrir­tækið svo að skrifað hefði verið undir samning um sölu og endur­leigu á þessum innviðum og myndi hagnaðurinn af henni nema 6,5 milljörðum króna. Einnig var minnst á samninginn í síðasta árshluta­uppgjöri Sýnar sem kom út í vikunni, en hann á eftir að fá samþykki Samkeppnis­eftirlitsins. Fjár­festarnir voru ekki nefndir, en Viðskipta­blaðið hafði áður greint frá því að um væri að ræða sjóð í stýringu bandaríska framtaks­sjóðsins Digital Colony.

Í viðtali við Frétta­blaðið í maí sagði Heiðar að Sýn gæti selt enn fleiri innviði fyrir milljarða á þessu ári, og nefndi þar sérstak­lega IPTV-kerfið í kringum mynd­lyklana og lands­dekkandi burðarnet. „Við viljum gjarnan selja og það eru kaupendur sem vilja kaupa,“ bætti hann við.

Skoða breytingar á eignarhaldi Mílu

Um svipað leyti og Sýn greindi frá aðskilnaði innviða og þjónustu tilkynnti Síminn flutning eigin farsíma­dreifi­kerfis og IP-nets til Mílu, innviða­hluta félagsins. Þessi flutningur myndi skerpa á hlutverki Símans sem þjónustu­fyrirtækis og Mílu sem innviða­fyrirtækis, samkvæmt fjárfesta­kynningu. Félagið bætti einnig við að verið væri að skoða hvort aðskilja ætti fjár­mögnun Mílu frá fjár­mögnun Símans.

Kjarninn greindi svo frá því í fyrra­haust að fjár­festar höfðu lagt fram óformlegar fyrir­spurnir til Símans um möguleg kaup á Mílu. Hins vegar sagði fyrir­tækið að engar ákvarðanir hefðu verið teknar um söluna.

Í síðasta árshluta­uppgjöri Símans kemur einnig fram að fjár­festingar­bankinn Lazard ásamt Íslands­banka hafi verið ráðnir til að ráðleggja um stefnu­markmið og framtíðar­möguleika Mílu. Einnig kæmi til greina að skoða breytingar á eignar­haldi Mílu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár