Nova í eigu fjárfesta frá Alaska

Fjár­festinga­félagið PT Capital Advisors, sem hefur höfuð­stöðvar sínar í Anchorage í Alaska og eiga stóran hlut í Keahótelum, hefur keypt út hlut Björgólfs Thors Björgólfs­sonar í fjarskipta­félaginu Nova og á því 94,5 prósent í félaginu núna.

Anchorage, höfuðborg Alaska í Bandaríkjunum
Anchorage, höf­uð­borg Alaska í Banda­ríkj­unum Mynd: Frank K / Wikimedia Commons.

Samkeppnis­eftirlitið hefur nú samþykkt fyrir­hugaðan samruna eignarhalds­félaganna Nova Acquisition Holding og Platínum Nova. Með því verður fjarskipta­félagið Nova í eigu fjár­festingar­félagsins PT Capital Advisors.

Líkt og kemur fram í tilkynningu Samkeppnisefirlitsins þýðir samruninn einnig að Nova muni vera undir sömu yfirráðum og hótel­rekandinn Keahótel, þar sem bandarísku fjár­festarnir keyptu í hótel­keðjunni fyrir fjórum árum síðan.

Björgólfur kveður Nova

Með sameiningu eignarhalds­félaganna hefur Björgólfur Thor Björgólfsson, stofnandi Nova, að fullu selt sig úr félaginu, en hann átti fyrir helmings­hlut í því í gegnum fjár­festingar­félagið Novator.

Björgólfur hafði áður selt helmings­hlut af félaginu til PT Capital Advisors árið 2016, en þau viðskipti voru útnefnd viðskipti ársins það ár af Frétta­blaðinu, Stöð 2 og Vísi. Sölu­verðið fyrir þann eignar­hlut nam 16 milljörðum króna.

Ekki kom fram í tilkynningu Samkeppnis­eftirlitsins hvert kaup­verðið á hlut Novators í Nova var, en samkvæmt síðasta ársreikningi Nova nam eigið fé félagsins 4,8 milljörðum króna. Félagið hagnaðist svo um rúman milljarð á síðasta ári og hyggst selja óvirku fjarskipta­innviðina sína á þessu ári, en sú sala er til skoðunar hjá Samkeppnis­eftirlitinu.

Fjárfestingar á Íslandi, Finnlandi og Alaska

Líkt og Kjarninn fjallaði um fyrir fjórum árum síðan fjárfestu PT Capital Advisors stóran hlut í Keahótelum, ásamt öðrum bandarískum fjár­festum, árið 2017. Líkt og sést á mynd hér að neðan er eignar­haldið í Nova og Keahótelum þó ekki beint, heldur er það bundið sjóðum og eignarhalds­félögum bæði innanlands og erlendis.

Eignar­hald PC Capital Advisors í Nova og Keahótelum. Með samrunanum sem var samþykktur af Samkeppnis­eftirlitinu mun eignarhalds­félag í eigu PT Capital Advisors eignast 50 prósenta hlut Björgólfs Thors í félaginu Platínum Nova hf.

Samkvæmt heimasíðu PT Capital sérhæfir félagið sig í fjár­festingar á mörkuðum sem hafa verið hlunn­farnir af hlutafjár­innspýtingu erlendra fjárfesta. Allar fjár­festingar þess eru stað­settar á Norðurslóðum, en til viðbótar við Nova og Keahótel á PT Capital Advisors í finnskri hótel­keðju og bandarískum ferða­þjónustu­fyrirtækjum, auk ýmissa iðnaðar­fyrirtækja frá Alaska.

Í yfir­lýsingu Samkeppnis­eftirlitsins sagðist stofnunin ekki sjá forsendur til að aðhafast vegna samrunans, þar sem Keahótel og Nova starfa á ólíkum mörkuðum talið var að starfsemi félaganna skarast ekki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár