Vilja stofna embætti tæknistjóra ríkisins

Fimm þing­menn hafa nú lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þar sem lagt er til að stofnað verði emb­ætti tækni­stjóra rík­is­ins sem hafi m.a. yfir­um­sjón með tækni­legum innviðum Stjórn­ar­ráðs­ins, utan­um­hald um opin gögn og ann­ist ráð­gjöf um upp­lýs­inga­ör­ygg­is­mál.

Smári McCarthy
Smári McCarthy Mynd: Bára Huld Beck

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga hefur verið lögð fram á Alþingi í annað skiptið um stofnun emb­ættis tækni­stjóra rík­is­ins. Fyrsti flutn­ings­maður er Smári McCarthy þing­maður Pírata en ásamt honum leggja fram til­lög­una þrír þing­menn úr sama flokki, þau Björn Leví Gunn­ars­son, Halldóra Mogensen og Helgi Hrafn Gunn­ars­son, sem og þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar Guðjón S. Brjáns­son.

Embætti tækni­stjóra rík­is­ins myndi hafa yfir­um­sjón með tækni­legum innviðum Stjórn­ar­ráðs­ins, sam­þætt­ingu vef­kerfa og for­rit­un­ar­við­móta og stöðlun þró­un­ar­ferla og gæða­stýr­ingar við hug­bún­að­ar­gerð.

Það myndi enn fremur hafa utan­um­hald um opin gögn, ann­ast ráð­gjöf um upp­lýs­inga­ör­ygg­is­mál og hafa umsjón með útboðum sem snúa að hug­bún­að­ar­þróun og öðru sem snýr að því að tryggja gæði raf­rænnar þjón­ustu hins opin­bera gagn­vart almenn­ingi.

Hugbúnaður í misjöfnu ásigkomulagi

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram að ör tölvu­væð­ing stjórn­kerf­is­ins á und­an­förnum árum hafi leitt til þess að flestar rík­is­stofn­anir hafa þróað ýmiss konar sér­hæfð hug­bún­að­ar­kerfi til að geta sinnt hlut­verki sínu betur en ella. Umræddur hug­bún­aður sé í mjög mis­mun­andi ásig­komu­lagi. Sumu hafi ekki verið haldið við, öðru við­haldið í mýflugu­mynd og enn annað sé í stöðugri þróun. Hug­bún­að­ur­inn sé þró­aður á mis­mun­andi tungu­málum, í mis­mun­andi aðgerða­söfnum, sumt sé veru­lega úrelt eða við­haldi þess hafi verið hætt hjá fram­leið­anda.

„Mikill hluti hug­bún­að­ar­ins hefur örygg­is­galla sem ekki hefur verið bætt úr og vafa­laust eru margir óþekktir gallar. Nánast ekk­ert af hug­bún­að­inum hefur gæða­hand­bók, sjálf­virka prófun eða áætlun fyrir lag­fær­ingar á þekktum göllum. Ýmsar rík­is­stofn­anir hafa gert sér grein fyrir þessu vanda­máli og hafa leit­ast við að laga það með ýmsu móti en umræddar stofn­anir hafa litla burði til að sinna hug­bún­að­ar­þróun, enda er það ekki hlut­verk þeirra. Þá eru verk­efni oft boðin út, en verk­takar hafa þá gjarnan yfir­burða­samn­ings­stöðu gagn­vart verk­kaupum, því að þótt stofn­anir rík­is­ins viti vel hvaða sér­hæfðu vanda­mál þau leit­ast við að leysa er sjaldan þekk­ing innan húss til að tryggja góða tækni­lega fram­kvæmd,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Jafn­framt kemur fram að dæmi um tölvu­kerfi sem hafi á und­an­förnum miss­erum skapað vanda­mál vegna við­halds­leysis, lélegs við­móts eða skorts á gæða­prófun séu lyfja­gagna­grunnur land­lækn­is­emb­ætt­is­ins og reikni­verk Hagstofu Íslands fyrir útreikn­ing á verð­bólgu.

Hliðstæð stofnun við embætti landlæknis

Í grein­ar­gerð­inni segir að með því að stofna emb­ætti tækni­stjóra rík­is­ins, sem hlið­stæða stofnun við til að mynda rík­is­skatt­stjóra og land­lækni – þ.e. sér­tæka fag­stofnun sem færi með yfir­um­sjón mála­flokks fyrir hönd rík­is­ins – mætti byrja að laga ýmis þau vanda­mál sem eru talin upp hér að framan með sam­stilltum aðgerðum til að skipu­leggja þróun hug­bún­aðar hjá rík­is­stofn­unum. Slík stofnun myndi byggja til umhverfi þar sem stærð­ar­hag­kvæmni næð­ist. Þá myndi tækni­þekk­ing innan húss gera það að verkum að hægt væri að gera nákvæm­ari og betri samn­inga við verk­taka, betra aðhald væri tryggt í sam­skiptum við verk­taka og hægt væri að leysa tækni­leg ágrein­ings­at­riði hraðar og í meiri sátt.

Samkvæmt því sem kemur fram í til­lög­unni myndi slík stofnun ekki endi­lega sjá um hug­bún­að­ar­þró­un­ina sem slíka, heldur væri hægt ýmist að bjóða hana út eða vinna hana innan húss hjá við­kom­andi stofnun eftir atvikum. Hins vegar gæti stofn­unin aðstoðað við þarfa­grein­ingu og gerð tækni­legrar kerf­is­lýs­ingar, lagt til við­móts­hönn­un­ar­við­mið, gagna­snið og fleiri tækni­leg atriði, veitt aðstoð við að útbúa útboðs­gögn og tryggt að í end­an­legri lausn yrði hugað að þver­nýtum kröfum á borð við öryggi, opin gögn, opin gagna­snið, opin for­rit­un­ar­við­mót, ein­inga­prófun og þess háttar.

Þá gæti emb­ættið rekið frjálsan hug­bún­að­ar­grunn fyrir hug­bún­að­ar­kerfi rík­is­ins og nýtt sam­legð­ar­krafta við sam­bæri­leg emb­ætti erlendis.

Helsti kosturinn talinn vera mikill sparnaður

Í grein­ar­gerð­inni eru nefndar erlendar hlið­stæður og eru þær sagðar hafa orðið algeng­ari á und­an­förnum árum. Í Banda­ríkj­unum hafi verið sett á stofn tækni­teymi undir nafn­inu 18F, og í Bret­landi hafi Govern­ment Digital Services (GDS) yfir­um­sjón með tækni­þróun. Í báðum til­fellum hafi þessar stofn­anir fyrst og fremst gegnt leið­sagnar- og stefnu­mót­un­ar­hlut­verki en þó einnig þróað tölu­vert af hug­bún­aði og sér­lausnum innan húss.

Þá er helsti kostur stofn­unar af þessu tagi tal­inn vera mik­ill sparn­aður, vegna þess að kostn­aður við hug­bún­að­ar­þróun og við­hald hug­bún­aðar myndi minnka og einnig vegna þess að hægt væri að draga veru­lega úr tví­verkn­aði. Til að mynda megi gera ráð fyrir því að hund­ruð klukku­tíma í hverju hug­bún­að­ar­þró­un­ar­verk­efni fari í hönnun og útfærslu not­anda­við­móts, að hluta til vegna þess að eng­inn sam­ræmdur við­móts­stað­all er til fyrir rík­is­stofn­anir. Með staðli og við­eig­andi gagna­söfnum og for­sniðum mætti stytta tím­ann sem fer í við­móts­hönnun niður í tugi klukku­tíma að jafn­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár