Obama og Hollande: Samstarf er lykillinn að árangri í hernaðaraðgerðum

Barack Obama forseti Banda­ríkjanna og Francois Hollande forseti Frakk­lands áttu fund í dag. Þeir segjast ætla að efla samtarf til að vinna gegn hryðju­verkaógan.

Barack Obama, forseti Banda­ríkjanna, sagði að loknum fundi sínum með Francois Hollande, forseta Frakk­lands, í Washington DC í dag, að nauðsynlegt væri að efla samstarf við Frakka til að berjast gegn hryðjuverka­samtökum eins og íslamska ríkinu (Daesh), en ekki síður til að vinna heildrænt að öryggis­málum í heiminum. Upplýsinga­flæði þyrfti að grundvallast af trausti og samvinnu á mörgum sérfræði­sviðum. „Aukið samstarf við Frakka er lykillinn að árangri,“ sagði Obama, en Hollande hafði áður ítrekað svipuð skilaboð.

Hollande sagði mikilvægt fyrir þjóðir heimsins að átta sig á hættunni sem fylgdi íslamska ríkinu og uppgangi þess, einkum í Írak og Sýrland. Aðferðir hryðju­verkamanna væru ómannúðlegar og ögrun við mannkynið. Það væri óhjákvæmilegt að berjast af hörku gegn þessum uppgangi, og ekki síður gegn tengsla­neti manna sem tilheyrðu hryðjuverka­samtökum og væru tilbúnir að beita vopnum gegn saklausu fólki. „Hver mínúta getur skipt máli í þeirri vinnu,“ sagði Hollande, og ítrekaði að hann ætlaði sér að halda áfram að beita sér fyrir auknu samstarfi þjóða heimsins. Hann mun funda með Angelu Merkel, kanslara Þýska­lands, á morgun, Vladímir Pútín, forseta Rússlands, skömmu fyrir mánaðar­mótin, og fleiri þjóðarleið­tögum, sem geta lagt sitt af mörkum með hernaðar­aðgerðum.

Hollande hefur opinber­lega lýst yfir stríði gegn íslamska ríkinu (Daesh) eftir að hryðju­verkamenn myrtu 130 manns og særðu hundruð til viðbótar, í árásum í París 13. nóvember síðastliðinn. Gríðar­lega umfangs­miklar lögreglu­aðgerðir eru enn í gangi í Frakk­landi, Belgíu, Þýska­landi og víðar, sem miða að því að draga úr hryðjuverkaógn, upplýsa um alla þætti sem tengjast árásunum og ná þeim sem að árásunum stóðu. Samhlið eru hernaðar­aðgerðir í Sýrlandi viðvarandi og er loft­árásum beitt gegna víga­mönnum íslamska ríkisins.

Obama ítrekaði í máli sínu að 65 þjóðir heimsins væru nú að vinn saman að aðgerðum í Sýrlandi sérstak­lega, en einnig í Írak og Afganistan. Rússland og Íran væru í samvinnu með stjórnarher Assads í Sýrlandi, en það væri mikið kappsmál að Rússar kæmu í samstarf með bandalagi þjóðanna 65 sem væru að starfa saman. Assad væri ekki treystandi, og því þyrftu Rússar að taka í sáttahönd alþjóða­samfélagsins svo að sameiginlegar aðgerðir gætu hafist.

Hollande tók undir þetta, og sagði það kappsmál að auka samvinnu í hernaðar­aðgerðum. Þannig væri best tryggt að hryðju­verkamenn næðu ekki að ógna almenningi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár