Pútín gaf bandarískum yfirvöldum klukkutíma fyrirvara

Vladímir Pútín, forseti Rússlands og trúnaðar­menn hans, tilkynntu bandarískum yfir­völdum um það með klukku­tíma fyrirvara, að rússneski herinn hygðist hefja loft­árásir á valin skotmörk í Sýrlandi. Rússar hafa sagt að árásirnar beinist að Íslamska ríkinu, en loft­árásirnar í dag, á borgina Homs, virtust fyrst og fremst hitta fyrir skæruliða sem hafa barist við stjórnarher Sýrlands, samkvæmt frásögn New York Times. Borgin er ekki á valdi Íslamska ríkisins, en vígamenn þess hafa þó barist innan borgar­marka.

Ákvörðun Rússa er á vefsíðu breska ríkis­útvarpsins BBC sögð tefja fyrir því að pólitísk samstaða náist um það hvernig skuli stilla til friðar í Sýrlandi, en Banda­ríkin, Frakkland og Bretland hafa ekki viljað vinna með stjórn­völdum í Sýrlandi meðan Bashar al-Assad er forseti og æðsti yfirmaður hersins.

Borgara­stríðið í Sýrlandi hefur nú þegar kostað að minnsta kosti 250 þúsund manns lífið og yfir 800 þúsund hafa slasast. Um tíu milljónir manna, af 22 milljóna heildar­fjölda, hafa flúið heimili sín.

Bandarísk stjórn­völd sögðu í dag að ákvörðun Rússa væri vonbrigði og að þeir gætu ekki einir stutt Assad og stjórn hans. Slíkt gæti grafið undan mögu­leikanum á friðsamlegri lausn.


Russian airstrikes in Syria: White House says Putin cannot act alone – live http://t.co/pWMADDN18i


— The Guardian (@guardian) September 30, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár