Forsætisráðherra Grænlands: „Ég verð að trúa“

Forsætis­ráðherra Grænlands, Jens-Frederik Nielsen, segir að unnið sé að samkomu­lagi við Banda­ríkin, en hann þekki ekki innihald hugsanlegs ramma­samnings sem forseti Banda­ríkjanna hefur vísað til. „Ef við getum ekki átt samskipti í réttum farvegi þá er erfitt fyrir mig að vita hvað hefur farið fram.“

Forsætis­ráðherra Grænlands, Jens-Frederik Nielsen, hélt blaðamanna­fund fyrir erlenda blaðamenn sem staddir eru í Nuuk í dag. Þar sagði hann að unnið væri að samkomu­lagi við Banda­ríkin, en hann þekki ekki innihald hugsanlegs ramma­samnings. Forseti Banda­ríkjanna, Donald Trump, hefur sagt að samkomu­lagi hafi verið náð vegna Grænlands og að sá samningur muni gilda að „að eilífu“. 

Prófsteinn á bandalag vestrænna þjóða

Fundurinn fór fram í menningar­miðstöð Nuuk þar sem forsætis­ráðherrann ávarpaði blaðamenn. Hóf hann fundinn á að árétta að Grænland væri enn í miðju alvarlegra atburða, í stöðu sem grænlenska þjóðin hafi aldrei viljað vera í. „Við finnum fyrir miklum þrýstingi á land okkar, bandamenn okkar og vini. Stuðningurinn frá Norður­löndunum, Danmörku og Evrópu er ómetanlegur. Við erum meðvituð um að stuðningurinn krefst mikls af vinum okkar og banda­mönnum og erum afar þakklát,“ sagði hann. 

Um leið sagðist hann gera sér grein fyrir því að það að verja alþjóðalög og grunn­gildi lýðræðis snerti ekki aðeins Grænlendinga heldur sé það prófsteinn fyrir heilindi vestrænna banda­manna. Markmið Grænlendinga og vilji þeirra sé að viðhalda friðsömum samræðum sem byggir á virðingu gagnvart stjórnar­skrá þeirra, réttinum til sjálf­stæðis og alþjóða­lögum. 

Taka öryggismál alvarlega

Greindi hann frá því að bandarískir embættis­menn hafi fundað með utan­ríkis­ráðherrum og samþykkt að halda áfram viðræðum í lokuðum samstarfs­hópi sem vinnur að lausn vegna áhuga Banda­ríkjanna á Grænlandi, án þessi að heilindum Danmerkur eða Grænlands sé fórnað eða rétti þeirra til sjálf­stæðis.

Grænland taki öryggismál á Norðurslóðum alvarlega og sé skuld­bundið NATO. Unnið verði að því að efla varnir svæðisins, meðal annars með lang­varandi uppbyggingu verkefna á vegum NATO, aukinni hernaðar­viðveru og heræfingum. 

„Ég trúi því að allir sem hafa stigið fæti á Grænland viti hvar við stöndum, en ég undir­strika það aftur: Grænland velur það Grænland sem við þekkjum í dag.“ Grænland sem er hluti af konungs­veldi Danmerkur og hefur rétt til sjálfs­stjórnar. „Það er ekki hægt að efast um vilja fólksins. Til að draga það saman: Við veljum konungs­ríki Danmerkur, við veljum Evrópu­sambandið, við veljum NATO.“

Staðan sem upp er komin sé ekki aðeins áskorun fyrir Grænland og Danmörku heldur snúist um skipan heimsins. „Við Grænlendingar erum friðsælt fólk. Það birtist meðal annars í því hvernig við nálgumst heiminn í kringum okkur, jafnvel þótt óvissu­ástand ríki. Við höfum og munum áfram sækjast eftir friðsælu samtali, sem fer fram á réttum vettvangi og eftir réttum boðleiðum.“

Er Grænland öruggt?

Eftir að Jens-Frederik Nielsen lauk máli sínu gaf hann sér nokkrar mínútur til þess að svara spurningum. Blaða­maður CNN fékk orðið: Er Grænland öruggt núna? spurði hann. „Enginn nema Grænland og konungs­ríki Danmerkur hafa umboð til þess að semja um Grænland,“ svaraði hann. „Varðandi samkomu­lagið sem hefur verið vísað til þá veit ég ekki hvað það innifelur. En ég veit að það er núna verið að vinna að lausn fyrir báða aðila. Við höfum sagt hér í Grænlandi að það eru rauðar línur, sem verður ekki farið yfir.“

Þar á meðal nefnir hann virðingu fyrir landinu, alþjóða­lögum og sjálf­stæði Grænlendinga. Grænlendingar eru reiðu­búnir að auka samvinnu þjóðanna í efnahags­málum og fleiri þáttum, en „það er eitthvað sem verður að ræða á grund­velli gagnkvæmrar virðingar.“ Vilji sé til staðar til að gera miklu meira í þeim efnum. 

„Hvað það varðar að vilja eiga Grænland, þangað til í gær gátum við ekki útilokað neitt. Viljinn til að eiga Grænlands birtist enn í orðræðu gærdagsins, en eins og ég segi þá höfum við frá upphafi sóst eftir því að eiga virðingar­fullt samtal sem fram fer á réttum vettvangi.“ Nú sé það í sjónmáli. „Ég er þakklátur fyrir það.“ 

Var ekki aðili að samtalinu

Aðspurður út í samskipti Donald Trump og Mark Rutte, framkvæmda­stjóra Grænlands, segir hann: „Mér skilst að samræður forsetans og Rutte hafi verið um sameiginleg markmið og þætti sem hægt er að sammælast um, eins og að efla varnir á svæðinu.“

Grænlendingar séu reiðu­búnir til að gera meira, innan ramma NATO, enda líti hann svo á að Grænlendar beri þar ábyrgð. Öryggi Norðurslóða sé mikilvægt. „Við erum öll sammála um það.“

„Fulltrúar frá Grænlandi og dönskum stjórn­völdum ræddu við Mark Rutte fyrir nokkrum dögum síðan og skila­boðin sem ég hef fengið er að það sem kom fram þar, um að við værum með skýrar rauðar línur, hafi verið miðlað til forsetans.“

Að öðru leyti viti hann hvað hafi farið fram í samtali sem hann var ekki aðili að. „Ef við getum ekki átt samskipti í réttum farvegi þá er erfitt fyrir mig að vita hvað hefur farið fram, öðruvísi en í gegnum fréttir.“

Treystir þú Trump?

Spænskur blaða­maður reisti spurninguna um hvort hægt væri að treysta því sem kom fram í ræðu Bandaríkja­forseta í ræðu hans á Davos í gær: Trúirðu hundrað prósent orðum herra Trumps að hann ætli ekki að taka yfir Grænland með hervaldi?

„Auðvitað verðum við að trúa því sem hann segir. Það sem ég vil trúa á er ramminn sem skapaði frið í heiminum fyrir mörgum, mörgum árum, eftir hryllilega tíma. Það sem við viljum trúa er að við séum nánir og ástkærir bandamenn hins vestræna bandalags. Og það er einnig það sem við verðum að trúa.

Eins og ég sagði, þetta snýst um heims­skipan. Þetta snýst um alþjóðlög. Þetta snýst um að virða land­fræðileg heilindi. Ég trúi því að heimurinn muni ekki taka þessa beygju – svo hrikalega. Ég verð að trúa því. Og ég trúi á að hið vestræna bandalag og gott samstarf geti þróast til hins betra. Líka fyrir grænlenska fólkið og konungs­ríkið Danmörku.“ 

Eru Bandaríkjamenn velkomnir til Grænlands?

Forsætis­ráðherrann var einnig spurður hvernig hann sér fyrir sér samband Grænlands og Banda­ríkjanna til framtíðar. Þangað hafi Bandaríkja­menn sótt í hernaðar­legum erinda­gjörðum, fyrir námugröft eða ferða­mennsku, svo dæmi séu tekin. Eru Bandaríkja­menn velkomnir til Grænlands í náinni framtíð?

„Við viljum virðingar­fullt og friðsælt samband við bandamenn okkar, trausta bandamenn til margra ára. En það leikur enginn vafi á því að orðræðan sem við höfum setið undir síðasta ár er óásættanleg fyrir okkur. Allt tal um að eignast Grænland er auðvitað óásættanlegt. Það hefur áhrif á hvernig fólk hugsar til hvors annars.“ 

Þrátt fyrir allt vonist grænlensk stjórn­völd og vinni enn að því að koma á góðu samtali, á réttum vettvangi, þar sem hægt er að stuðla að samstarfi og gagnkvæmri virðingu. Ef virðing er borin fyrir rauðum línum sem Grænlendingar hafa dregið, geti þessar þjóðir átt gott samband í kjölfarið. 

„Auðvitað er erfitt þegar þú heyrir á hverju kvöldi hót­anir um að taka yfir Grænland“

Það breytir því þó ekki að málið hefur haft mikil áhrif á alla þjóðina.

„Auðvitað er erfitt þegar þú heyrir á hverju kvöldi hótanir um að taka yfir Grænland. Þar til í gær gátum við ekki útilokað neitt. Reyndu að ímynda þér hvernig það er fyrir Grænlendinga, fólkið hér, friðsælt fólk, að heyra það og sjá í fjöl­miðlum alla daga að einhver vilji svipta þá frelsinu,“ segir hann og grænlenskur blaða­maður sem situr við hlið blaða­manns Heimildarinnar andvarpar þungt, svo auðsýnt er að staðan hefur fengið þungt á hann. Forsætis­ráðherrann heldur áfram:  „Það getur auðvitað gert það að verkum að Grænlendingar sjái þetta öðruvísi.“ 

Enn haldi grænlensk stjórn­völd í vonina um að hægt sé að koma á virðingar­fullum samskiptum og friðsælu samstarfi. Gagnvart þessari áskorun séu það ekki aðeins hagsmunir og frelsi Grænlendinga sem sé undir, heldur eitthvað allt annað og miklu stærra. Málið snúist í raun um heims­skipan, sem hefur stuðlað að friði í áratugi. „Það er ekkert sem á að spila með.“ 

Eftir fundinn spurði grænlenski blaða­maðurinn: Af hverju heyrist ekkert frá Banda­ríkjunum um þennan samstarfshóp? 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár