AGS: Ísland í betri stöðu í ár heldur en fyrir hrunið

Formaður sendi­nefndar Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (AGS) gagn­vart Íslandi, Peter Dohlman, segir að Ísland geti orðið fyrsta þjóðin í Evrópu til þess að kom­ast í betri efna­hags­lega stöðu en var fyrir hendi þegar bank­arnir hrundu, á þessu ári. Margt bendi til þess að Ísland sé að ná efna­hags­legum vopnum sínum á nýjan leik, en gæta þurfi að því að við­halda stöð­ug­leika á meðan rýmkun fjár­magns­hafta er und­ir­búin og síðan hrint í fram­kvæmd.

Skýrsla AGS um Ísland, var til umræðu á fundi fram­kvæmda­stjórnar sjóðs­ins 9. mars síð­ast­lið­inn, en hún er sú fimmta sem kemur frá honum um Ísland eftir að efna­hags­á­ætlun sjóðs­ins og Íslands lauk form­lega. Í stórum dráttum teiknar AGS upp nokkuð góða mynd af stöðu efna­hags­mála hér á landi, þó við­var­andi óvissa sé fyrir hendi vegna fjár­magns­hafta.

Hér má sjá Má Guð­munds­son, seðla­banka­stjóra, á vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi í des­em­ber, þar sem hann klædd­ist jóla­peysu. AGS segir mik­il­vægt að sjálf­stæði seðla­bank­ans verði verndað áfram.

 

Þarf að styrkja innviði


Sendi­nefndin leggur til að umbætur verði gerðar til að auka fram­leiðni og sam­keppn­is­hæfni íslenska hag­kerf­is­ins, ekki síst starfs­fólks­ins. Seðla­bank­inn er jafn­framt hvattur til að beita sér gegn þrýst­ingi á of miklar launa­hækk­anir, sem hag­kerfið standi ekki undir, og halda áfram að stækka gjald­eyr­is­vara­forð­ann. Þá leggur AGS áherslu á að sjálf­stæði seðla­bank­ans standi óhaggað og að spenn­andi verði að sjá nið­ur­stöð­una af end­ur­skoðun laga um Seðla­banka Íslands.

Fjármál ríkisins á góðu róli


Fjármál rík­is­ins eru á góðu róli, segir AGS. Hér sjást Bjarni Bene­dikts­son , efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­sæt­is­ráð­herra, tala fyrir umdeildri aðgerð, hinni svo­nefndu leið­rétt­ingu.

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hrósar stjórn­völdum fyrir það, að rík­is­fjár­málin séu nú komin í góðan far­veg, en svig­rúm sé þó fyrir hendi til þess að auka hag­kvæmni skatt­kerf­is­ins. Nauð­syn­legt sé að taka á vanda Íbúða­lána­sjóðs, með hags­muni rík­is­ins að leið­ar­ljósi.

Peter Dohlman segir í til­kynn­ingu, að mikil fjölgun ferða­manna hafa hjálpað mikið til við að rétta hag­kerfið af og að hlut­irnir séu almennt á réttri leið. Skuldir í erlendri mynt séu þó enn miklar, og mik­il­vægt sé að huga að því að end­ur­skipu­leggja eign­ar­hald á fjár­mála­kerf­inu.

Samkvæmt nýj­ustu tölum Hagstofu Íslands mæld­ist 1,9 pró­sent hag­vöxtur í fyrra, en það er tölu­vert minna en reiknað var með í byrjun árs­ins. Spár, þar á meðal AGS, gerðu ráð fyrir um þrjú pró­sent hag­vexti. Atvinnu­leysi á Íslandi mælist með því allra lægsta í Evrópu, eða 4,3 pró­sent. Meðaltal Evr­ópu­ríkja er ríf­lega 10 pró­sent, sam­kvæmt tölum Eurostat, Hagstofu Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár