Freyr Eyjólfsson: „Munu reyna að taka sem flesta með sér í dauðann“

Enn eru fimm gíslar í haldi hryðju­verkamanna í matvörubúð gyðinga við port de Vincennes í austur­hluta borgarinnar. Manni rennur óneitanlega í grun að tíma­setningarnar hér séu engin tilviljun. Flest allt lögreglulið var í norður­hluta borgarinnar þegar maðurinn sem myrti lögreglu­konuna í gær dúkkaði upp að nýju. Óljósar fréttir herma að tveir séu fallnir – skothljóð hafa heyrst.

Freyr Eyjólfsson.

Freyr Eyjólfsson.
Freyr Eyj­ólfs­son.

Það sem gerir svona aðgerðir sérlega erfiðar er að París er ein þétt­býlasta borg í heimi; þröngar götur og í raun mjög erfitt fyrir lögreglu að takast á við svona mál.

Sérfræðingar sem fjölmiðla­menn ræða við þessa stundina telja fyrir víst að ódæðis­mennirnir tengist og hafi skipulagt sig saman. Þessa stundina hafi þeir engu að tapa og munu reyna að taka sem flesta með sér í dauðann.

Athugasemd frá ritstjórn. Fólkið á höfuðmynd greinarinnar er grunað um voða­verkin í austur­hluta Parísar í dag. Þá er karl­maðurinn grunaður um að hafa myrt lögreglu­konu í borginni í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár