Löfven mun tilkynna í dag að hætt hafi verið við nýjar kosningar

Sænska dagblaðið Expressen greinir frá því á vef sínum að boðaðar kosningar,sem áttu að fara fram 22. mars 2015, verði ekki haldnar. Búið er að boða til blaðamanna­fundar klukkan 10:30 þar sem Stefan Löfven forsætis­ráðherra, og leiðtogi Jafnaðar­manna í Svíþjóð, mun tilkynna um þetta. Með honum á fundinum verða forsvars­menn sænsku borgara­flokkanna, sem sitja ekki í ríkis­stjórn.

Löfven hafði boðað til kosninga fyrr í desember­mánuði í kjölfar þess að minnihluta­stjórn undir hans forsæti mistókst að koma fyrsta fjár­laga­frumvarpi sínu í gegnum þingið, en hún tók við völdum í kjölfar þing­kosninga sem fóru fram í september síðastliðnum.

Skoðannakannanir bentu til þess að Svíþjoðademókratar, flokkur þjóðernis­sinna sem vill herða mjög innflytjenda­löggjöf landsins, myndi styrkja sig mjög ef kosið yrði aftur í mars. Flokkurinn vann stórsigur í síðustu kosningum þegar hann fékk 12,9 prósent atkvæða, sem er það mesta sem hann hefur nokkru sinni hlotið.

Undan­farna daga hafa ríkis­stjórnar­flokkarnir í Svíþjóð átt í viðræðum við borgara­flokkanna í landinu um stuðning við að koma fjár­laga­frumvarpinu í gegnum sænska þingið. Fulltrúar þeirra verða með Löfven á blaðamanna­fundinum á eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár