Telja ekki skynsamlegt að breyta sköttum verulega á ökutæki og eldsneyti

Starfs­hópur telur gild­andi kerfi skatt­lagn­ingar öku­tækja og elds­neytis í meg­in­at­riðum ein­falt og hag­an­legt og telur ekki skyn­sam­legt að það taki stakka­skiptum.

Starfs­hópur telur gild­andi kerfi skatt­lagn­ingar öku­tækja og elds­neytis í meg­in­at­riðum ein­falt og hag­an­legt og telur ekki skyn­sam­legt að það taki stakka­skiptum. Hins vegar leggur hóp­ur­inn til að gerðar verði breyt­ingar sem taka til­lit til þró­unar sem á sér stað um þessar mundir á sam­setn­ingu og notkun öku­tækja.

Þetta kemur fram í skýrslu sem starfs­hópur hefur unnið að varð­andi end­ur­skoðun skatt­lagn­ingar öku­tækja og elds­neytis sem hann hefur skilað til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Frá þessu er greint í frétt ráðu­neyt­is­ins í dag.

Hópurinn var skip­aður í febr­úar árið 2016 og var falið að að rann­saka núver­andi fyr­ir­komu­lag og fram­kvæmd skatt­lagn­ingar öku­tækja og elds­neytis, leggja til breyt­ingar á gild­andi lögum og gera til­lögu að fram­tíð­ar­stefnu stjórn­valda í þessum efnum. Við end­ur­skoð­un­ina var hópnum gert að vinna að ákveðnum mark­miðum.

Þau mark­mið voru að ein­falda skatt­kerfið og gera það rétt­lát­ara. Að hafa sam­ræmi og skil­virkni í skatt­kerf­inu. Að spara orku og auka notkun inn­lendra orku­gjafa, draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og skað­legra efna í útblæstri öku­tækja og móta fram­tíð­ar­sýn um hlut­deild vist­vænna öku­tækja í skatt­tekjum rík­is­ins. Draga úr skatt­lagn­ingu á öflun og eign á öku­tækjum, tryggja rík­is­sjóði nægar skatt­tekjur meðal ann­ars til að standa undir upp­bygg­ingu og við­haldi sam­göngu­mann­virkja, og tryggja að fyr­ir­komu­lag skatt­lagn­ing­ar­innar sam­ræmd­ist ákvæðum laga um opin­ber fjár­mál.

Í skýrslu starfs­hóps­ins er meðal ann­ars að finna umfjöllun um breyt­ingar sem hafa orðið og eru að verða á mæl­ingu og upp­lýs­inga­gjöf evr­ópskra bif­reiða­fram­leið­enda um losun og mengun frá öku­tækjum. Þar sem fyr­ir­sjá­an­legt er að upp­lýs­ingar um koltví­sýr­ingslosun frá öku­tækjum muni breyt­ast eru settar fram til­lögur sem ætlað er að draga úr líkum á að mis­ræmi skap­ist við skatt­lagn­ingu öku­tækja.

Hér fyrir neðan má sjá stefnu skatt­lagn­ingar ökutækja og elds­neytis 2020 til 2025.

Mun snerta atvinnulífið með ýmsum hætti

Enn fremur segir í skýrsl­unni að ljóst sé að tillögur starfshópsins munu snerta atvinnulífið með ýmsum hætti, meðal ann­ars hvað varðar skatta á öflun ökutækja, notkun þungra ökutækja, elds­neyt­is­gjöld og kolefn­is­skatt. Starfshópur­inn sé með­vit­aður um að öflugt atvinnulíf sé for­senda öflugs efna­hagslífs og lífsgæða. Skattar hafi áhrif á hvata og verð­mæta­skap­andi hegðun ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Ætla megi að helstu áhrif til­lagna starfshópsins á atvinnulíf geti ann­ars vegar orðið nei­kvæð fyrir atvinnu­rekstr­ar­að­ila þar sem inn­kaups­verð ökutækja og jarð­efna­elds­neytis muni hækka.

„Skuldir þeirra geta hækkað til skemmri tíma litið í takt við hækk­andi inn­kaups­verð ökutækja og afkoma versnað svo ein­hverju nemi vegna hærri rekstr­ar­kostn­aðar ökutækja. Gera má ráð fyrir að áhrifin komi hvað helst fram hjá fyr­ir­tækjum sem fjárfesta í mörgum ökutækjum eða eru veru­lega háð notkun ökutækja í rekstri sínum. Hins vegar má einnig gera ráð fyrir að hærra inn­kaups­verð ökutækja hafi til skamms tíma jákvæð áhrif á eigið fé fyr­ir­tækja vegna hækk­andi verð­mætis ökutækja sem verða þegar í þeirra eigu þegar tillögurnar koma til fram­kvæmda. Til lengri tíma litið má gera ráð fyrir að nei­kvæð áhrif til­lagn­anna gangi að veru­legu leyti til baka í takt við samdrátt koltvísýringslos­unar og minni elds­neyt­iseyðslu nýrra ökutækja,“ segir í skýrsl­unni.

Mun líka hafa áhrif á heimilin

Tillögur starfshópsins munu jafn­framt snerta heim­ilin með beinum eða óbeinum hætti, sam­kvæmt skýrslu­höf­undum. Þeir segja að áhrifin geti komið fram með óbeinum hætti í gegnum verð­lag fyrir til­stuðlan áhrifa á atvinnulífið. Enn fremur komi áhrifin fram með beinni hætti í útsöluverði í gegnum skatt­lagn­ingu á öflun ökutækja, elds­neyt­is­gjöld og kolefn­is­skatt. Gera megi ráð fyrir að áhrifin muni verða nei­kvæð á ráðstöfun­ar­tekjur flestra heim­ila, en þó ekki allra, að minnsta kosti til skemmri tíma litið. „Skattar skapa hvata og ætla má að heim­ilin bregð­ist við mögulegum breyt­ingum með því að draga úr losun. Því má ætla að áhrifin verði óveru­leg til lengri tíma litið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár