Barokkbandið Brák safnar fyrir útgáfu plötu sem skilur eftir sig menningarleg verðmæti

Ný hljóm­plata Barokk­bandsins Brákar nefnist Tvær hliðar/ Two Sides og verður tvöföld. Hljóm­sveitin safnar nú fyrir upptökum og útgáfu hennar á Karolina Fund og áætlar að platan komi út í lok árs 2021.

Barokk­bandið Brák er tónlistar­hópur sem fiðlu­leikararnir Elfa Rún, Laufey og Guðbjörg Hlín stofnuðu fyrir sex árum með það að leiðar­ljósi að glæða lífi í barokk­tónlist flutta á upprunaleg hljóðfæri á Íslandi. Frá stofnun hópsins hefur hann staðið að fjölda tónleika í Reykjavík og Skálholti við góðar undir­tektir áheyrenda og gagn­rýnenda. Hópurinn hefur einnig beint kröftum sínum að flutningi nýrrar íslenskrar tónlistar á barokk­hljóðfæri í samstarfi við íslensk samtíma­tónskáld. Mikil­vægur þráður í starfi Brákar hefur svo verið að leyfa nýrri kynslóð hljóðfæra­leikara að kynnast svokallaðri uppruna­spila­mennsku (e. Historical Performance Practice) og þeirri einstöku orku og ótal túlkunar­möguleikum sem uppruna­spila­mennska hefur fram að færa. Í því samstarfi hefur aukist við flóru og fjöl­breytni íslensks tónlistar­lífs.

Hugmyndin að plötunni Tvær hliðar/ Two Sides kviknaði hjá forsprökkum Brákar haustið 2019. Þeim fannst kominn tími til, eftir marga vel heppnaða tónleika að skjal­festa starf sitt með því að ráðast í útgáfu á hljóm­plötu. „Við í Brák ætlum að hljóðrita okkar fyrstu hljóm­plötu nú í lok mars. Hún nefnist Tvær hliðar/ Two Sides og endur­speglar vel starf okkar sem tónlistar­hópur í gegnum tíðina. Á henni verða fram­reiddar tvær hliðar sígildrar tónlistar, þ.e. barokk­tónlist og íslensk samtíma­tónlist. Barokk­diskurinn mun innihalda þekkt verk sem við höfum áður flutt á tónleikum, meðal annars eftir Vivaldi og Corelli, en einnig lítið þekkt verk sem hafa aldrei verið spiluð inn á geisla­disk áður!

Diskurinn með íslensku verkunum mun innihalda 3 glæný verk eftir tónskáldin Kristinn Smára Kristinsson, Bergrúnu Snæbjörns­dóttur og Þráin Hjálmarsson sem við munum frum­flytja á tónleikum í Hörpu þann 28. mars næst­komandi. Þá verða einnig hljóð­rituð íslensk verk sem hafa verið samin sérstak­lega fyrir Barokk­bandið Brák á síðastliðnum árum.“

Brák-hópurinn segir að tónlist gefin út á geisla­diski og á streymis­veitum gefur sér tækifæri á að ná til stærri áheyrenda­hóps og koma íslenskri tónsköpun, sérþekkingu í uppruna­spila­mennsku og hljóm­sveitinni sjálfri á framfæri en síðast en ekki síst skilji hún eftir sig menningarleg verðmæti fyrir hlustendur og alla sem að upptökunum koma. „Þá vonumst við til að með efnislegri útgáfu á geisla­disk verði til dýrmæt heimild um þá grósku og sköpun sem á sér stað um þessar mundir í íslensku tónlistar­lífi.“

Allir meðlimir Brákar eru þraut­reyndir tónlistar­menn. Elfa Rún er búsett í Berlín og er marg­verð­launaður fiðlu­leikari sem hefur komið fram á tónleika­sviðum um heim allan ýmist sem einleikari, konsert­meistari eða kammermúsík­spilari. Hún leikur reglulega með Akademie für Alte Musik Berlin og lista­hópnum Nico and the Navigators. Hún hefur gefið út þónokkra geisla­diska á síðastliðnum árum sem hafa verið tilnefndir og unnið til verðlauna hjá Preis der deutschen Schallplattenkritik og á Íslensku tónlistar­verð­laununum.

Laufey hefur verið fastráðin við Sinfóníu­hljómsveit Íslands frá árinu 2019 og kemur reglulega fram á tónsviðinu sem einleikari, hljóm­sveitar­spilari og kammermús­síkant. Einnig hefur hún leikið inn á fjölda hljóð­ritana á sígildri og dægurlaga­tónlist síðustu ár.

Guðbjörg Hlín hefur lagt stund á uppruna­flutning á barokk­tónlist í námi erlendis. Guðbjörg er einnig meðlimur í hljóm­sveitinni Umbru sem flytur og útsetur miðalda­tónlist og þjóðlaga­tónlist. Guðbjörg hefur auk þess ferðast um heim allan og flutt og popp­tónlist með hinum ýmsu hljómsveitum.

Þær þrjár leika allar á fiðlu með Brák en auk þeirra ​koma fram á plötunni, fiðlu­leikararnir Gróa Margrét Valdimars­dóttir, Gunnhildur Daða­dóttir, Guðbjartur Hákonarson og Sólveig Vaka Eyþórs­dóttir, víólu­leikararnir Guðrún Hrund Harðar­dóttir og Þóra Margrét Sveins­dóttir, selló­leikararnir Steinunn Arnbjörg Stef­ánsdóttir og Guðný Jónasdóttir, bassa­leikarinn Richard Korn og sembal­leikarinn Halldór Bjarki Arnarson

Hægt er að styrkja verkefnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár