Ítreka stuðning við ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar að sækja um aðild að NATO

For­sæt­is­ráð­herrar Íslands, Dan­merkur og Noregs hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þeir segja að ríkin muni aðstoða Finnland og Svíþjóð með öllum ráðum verði öryggi þeirra ógnað áður en aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu gengur í gildi.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Við munum eftir fremsta megni tryggja að aðild­ar­ferlið gangi hratt fyrir sig þar sem Finnland og Svíþjóð stand­ast nú þegar við­mið sem gerð er krafa um vegna aðildar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu.“

Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu sem for­sæt­is­ráð­herrar Íslands, Dan­merkur og Noregs hafa gefið út þar sem þeir ítreka stuðn­ing við ákvörðun Finn­lands og Sví­þjóðar að sækja um aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO), sem til­kynnt var um í gær og í dag.

Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að nor­rænu ríkin innan banda­lags­ins muni leggja sig fram um að tryggja að umsókn­ar­ferlið gangi hratt fyrir sig enda stand­ist Finnland og Svíþjóð nú þegar þau við­mið sem krafa er gerð um vegna aðildar að banda­lag­inu.

For­sæt­is­ráð­herrar Íslands, Dan­merkur og Noregs taka jafn­framt fram að ríkin muni aðstoða Finnland og Svíþjóð með öllum ráðum verði öryggi þeirra ógnað áður en aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu gengur í gildi.

Fyrsta sinn sem formaður VG myndi styðja stækkun NATO

Kjarninn spurði Katrínu Jak­obs­dóttir for­mann Vinstri grænna (VG) og for­sæt­is­ráð­herra í byrjun maí hvort hún myndi styðja við stækkun NATO og svar­aði hún að hún myndi styðja þá ákvörðun sem Finn­land og Sví­þjóð myndu taka.

Það væri í fyrsta sinn sem for­maður VG myndi styðja við stækkun NATO en fyrrum for­maður flokks­ins, Stein­grímur J. Sig­fús­son, og þing­menn flokks­ins hafa ítrekar greint frá þeirri afstöðu sinni að Ísland eigi ekki að vera í NATO og þau styddu ekki stækkun banda­lags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár