Tíu fyrirtæki valin í Startup Tourism 2016

Alls bárust 74 hugmyndir í Startup Tourism sem miðar að nýsköpun í ferða­þjónustu. Nýr viðskipta­hraðall Icelandic Startups hefst 1. febrúar.

Ferðaþjónusta er meðal þeirra greina sem vex hvað hraðast á Íslandi. Aldrei hafa fleiri ferðamenn komið til Íslands en á árinu 2015 og búist er við að þeim fjölgi á þessu ári.
Ferða­þjón­usta er meðal þeirra greina sem vex hvað hrað­ast á Íslandi. Aldrei hafa fleiri ferða­menn komið til Íslands en á árinu 2015 og búist er við að þeim fjölgi á þessu ári. Mynd: Birgir Þór

Gisting í glærum kúlum, sjálf­virkar tækni­lausnir, álfar og huldufólk er meðal þess sem sprota­fyrirtækin tíu sem valin hafa verið til þátttöku í Startup Tourism árið 2016 ætla að bjóða ferða­mönnum hér á landi upp á. Viðskipta­hraðallinn fer fram í fyrsta sinn í vor en í dag var tilkynnt hvaða hugmyndir fengu þátttöku­rétt í ár.

Tíu teymi voru valin úr hópi 74 viðskipta­hugmynda til að taka þátt í viðskipta­hraðlinum sem hefst í byrjun næsta mánaðar. Þessara teyma bíður tíu vikna námskeið, fræðsla og þjálfun í stofnun fyrir­tækja og rekstri þeirra.

Að námskeiðunum koma sérfræðingar og lykil­aðilar í ferða­þjónustunni og hjálpa sprota­fyrir­tækjunum að fóta sig og átta sig á tækifærum og rekstar­grundvelli hugmynda sinna.

Startup Tourism er á vegum Icelandic Startups sem áður hét Klak Innovit. Hjá Icelandic Startups er haldið utan um íslensku viðskipta­hraðlana Startup Reykjavík sem hýsir almenn nýsköpunar­fyrirtæki, Startup Reykjavík Energy sem hýsir sprota­fyrirtæki í orku­geiranum og Startup Tourism sem er sérstak­lega miðaður að ferða­þjónustunni.

Markmiðið með þessum nýja viðskipta­hraðli er að efla frumkvöðla­starf innan ferða­þjónustunnar á Íslandi og stuðla að faglegri undir­stöðu hjá nýjum fyrir­tækjum, segir í tilkynningu. Einnig er markmiðið að ýta undir dreifingu ferða­manna um landið. Í vetur héldu fulltrúar Startup Tourism vinnu­smiðjur víða um land þar sem áhuga­samir voru hvattir til að þróa hugmyndir sínar áfram og sækja um þátttöku.

„Við erum ekki síst að reyna að miðla þeirri þekkingu sem orðið hefur til á undan­förnum árum og áratugum í ferða­þjónustunni,“ segir Oddur Sturluson, verkefna­stjóri Startup Tourism. „Það er mikilvægt að efna til umræðu um helstu áskoranir innan greinarinnar.“

Sprotafyrirtækin sem valin voru til þátttöku eru:

  • Adventurehorse Extreme sem ætlar að skipuleggja krefjandi kappreið um landið fyrir reynda knapa.
  • Arctic Trip vill standa fyrir nýstárlegri ferða­þjónustu á og í kringum Grímsey.
  • Bergrisi er að hanna hugbúnaðar- og tækni­lausn fyrir þjónustu­sala svo gera meigi bæði sölu- og afgreiðslu­ferlið sjálf­virkara.
  • Book Iceland er fyrirtæki utan um bókunar­kerfi fyrir gistiheimili og smærri hótel.
  • Happyworld ætlar að nýta rokið til að bjóða upp á svif­íþrótta­ferðir.
  • Health and Wellness býður upp á heilsu­tengda ferða­þjónustu um Vestur­land þar sem hlúð er að líkama og sál.
  • Jaðar­miðlun ætlar að kynna álfa og huldufólk á tímamóta­sýningu sem byggð er á íslenskum sagnaarfi.
  • Náttúru­kúlur bjóða ferða­mönnum upp á gistingu í glærum kúlum þar sem hægt er að upplifa náttúruna og skoða stjörnur og norður­ljós.
  • Taste of Nature fer með ferðamenn í dags­ferðir þar sem íslensk náttúra, matar­upplifun og tengsl við heimamenn eru í forgrunni
  • Traust­holtshólmi býður upp á sjálfbæra dvöl á óspilltri eyju í Þjórsá.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár