IKEA greiðir eigendum sínum hálfan milljarð í arð

Miklatorg hf., eigandi IKEA á Íslandi, hagnaðist um 982,5 milljónir króna á síðasta rekstarári og jókst hagnaðurinn um tæpar 224 milljónir frá fyrra ári.

Miklatorg hf., eigandi IKEA á Íslandi, hagnaðist um 982,5 milljónir króna á síðasta rekstarári. Hagnaður félagsins árið þar á undan var 758,9 milljónir og jókst hann þannig um tæpar 224 milljónir á milli ára. Mbl.is greindi fyrst frá.

Í ársreikningi kemur fram að sölu­tekjur fé­lags­ins námu 10,3 millj­örðum króna og juk­ust um tæp­lega 1,4 millj­arða milli rekstr­ar­ára. Rekstr­ar­gjöld­in juk­ust á sama tíma um liðlega millj­arð króna. Hagnaður fyr­ir af­skrift­ir og fjár­magnsliði, EBITDA, var 1,3 millj­arðar króna og jókst um 322 millj­ón­ir króna á milli ára.

Eign­ir fé­lags­ins námu 2,2 millj­örðum króna í lok rekstr­ar­árs­ins og var eigið fé 535 millj­ón­ir króna.

Stjórn félagsins leggur til að hlut­höf­um verði greidd­ar 500 millj­ón­ir króna í arð. Í stjórn­inni sitja eig­end­ur fé­lags­ins, bræðurn­ir Jón og Sig­urður Gísli Pálma­syn­ir og Sig­fús­ B. Ingi­mund­ar­son­.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár