Woody Allen leikstýrir fyrstu sjónvarpsþáttum sínum fyrir Amazon

Leik­stjórinn Woody Allen, sem verður áttræður í desember næst­komandi, mun leikstýra fyrstu sjónvarps­þáttar­röðinni á ferli sínum síðar á þessu ári fyrir Amazon TV. Amazon greindi frá þessu í tilkynningu til Nasdaq-kaup­hallarinnar í New York fyrr í dag. Allen mun bæði skrifa og leikstýra þáttunum, sem hafa enn ekki hlotið nafn. Hver þáttur verður hálftíma­langur og viðskipta­vinir Amazon TV í Banda­ríkjunum, Bretlandi og Þýska­landi munu geta horft á þá.

Í frétta­tilkynningu Amazon er eftir­farandi haft eftir Allen: „Ég veit ekki hvernig ég kom mér í þetta. Ég er ekki með neinar hugmyndir og veit ekkert hvar ég á að byrja. Ég giska á að Roy Price [vara­forseti Amazon Studios] eigi eftir að sjá eftir þessu.“

Efnisveitur vinna til verðlauna


Amazon TV selur streymi­á­skrift til við­skipta­vina sinna. Við­skipta­mód­elið er ekki ósvipað Netflix, sem Íslend­ingar þekkja vel. Efn­isveit­urnar hafa báðar fram­leitt eigið efni sem sýnt er hjá þeim og gengið fanta­vel. Á Golden Globe hátíð­inni sem fram fór um liðna helgi var þátta­röðin Tran­sparent, sem fram­leidd er af Amazon, meðal ann­ars til tvennra verð­launa og Kevin Spacey fékk ein fyrir hlut­verk sitt í House of Cards, sem Netflix sýndi og fram­leiddi. House of Cards þátta­röðin hlaut enn­fremur sjö Emmy verð­laun í fyrra.

Amazon er talið hafa eytt um tveimur milljörðum dala í efni á síðasta ári á meðan að Netflix eyddi um þremur milljörðum dala. Innifalið í þessum tölum er bæði fram­leiðsla á eigin efni og kaup á rétti til að sýna efni sem framleitt er af öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár