Múslimi hylltur fyrir að stöðva fjöldamorð á Gyðingum

Bjarg­vætturinn á Bondi Beach, sem yfir­bugaði byssumann mitt í skotárás hans á Gyðinga, er múslimi sem rekur ávaxta­verslun.

Ahmed al Ahmed
Ahmed al Ahmed Yfir­bug­aði fjöldamorð­ingja en var skot­inn af hinum byssu­mann­inum. Mynd: Skjáskot

Maðurinn sem stöðvaði hryðju­verkamann í miðri skotárás á gyðinga, sem fögnuðu jóla­hátíðinni hanukkah á Bondi Beach í Sydney, er 43 ára gamalla, tveggja barna faðir og múslimi.

Ahmed al Ahmed, sem rekur ávaxtabúð í Sutherland Shire í suður­hluta Sydney, er hylltur sem hetja eftir að hafa afvopnað einn árásar­mannanna.

Árásin, sem átti sér stað um klukkan 18:47 að staðar­tíma í Archer Park við Bondi Beach, kostaði 16 manns lífið og átti sér stað meðan um þúsund manns héldu upp á fyrsta dag hanukkah-hátíðarinnar. Lögreglan í Nýja Suður-Wales rannsakar nú hvort þriðji árásar­maðurinn hafi einnig átt þátt í ódæðinu.

Hafði enga þjálfun í meðferð skotvopna

Myndskeið frá vettvangi sýnir Ahmed, klæddan í hvíta stuttermabol, hraða sér beint að einum árásar­manninum sem hélt á rifflinum og beindi honum að mann­fjöldanum á ströndinni. Ahmed hendir sér á hann, tekur af honum vopnið og beinir því síðan að árásar­manninum sem hörfar í átt að brú þar sem annar skot­árásarmaður var stað­settur.

Skotárásin í morgunAhmed stekkur á skot­mann­inn og stekkur honum svo á brott, en verður fyrir skoti frá hinum hryðju­verka­mann­inum.X

Að sögn frænda hans, Mustafu, sem ræddi við ástralska fjölmiðla fyrir utan sjúkrahús í Sydney, hafði Ahmed enga reynslu af skot­vopnum. „Hann var bara í heimsókn á Bondi þegar árásin hófst – hann ákvað að bregðast við,“ sagði Mustafa.

Ahmed hlaut skotsár á handlegg og hönd þegar annar árásar­maðurinn, stað­settur á brúnni, skaut í áttina að honum. Hann gekkst undir aðgerð að kvöldi sunnudags og er á batavegi. „Við vonum að hann verði í lagi,“ sagði Mustafa. „Hann er hetja, hundrað prósent.“

Netanyahu: „Múslimi bjargaði gyðingum“

Ísraelski forsætis­ráðherrann Benjamin Netanyahu vísaði til hetjudáða Ahmeds á ríkis­stjórnar­fundi í dag.

„Við sáum verk hugrakkar manneskju – og í ljós kemur að það var múslimi, hugrakkur múslimi – sem stöðvaði einn þessara hryðju­verkamanna frá því að drepa saklausa gyðinga,“ sagði Netanyahu.

Hann bætti við að hann hefði varað ástralska starfs­bróður sinn, Anthony Albanese, við því að stefna stjórn­valda þar í landi „kveikti elda gyðinga­haturs“.

Hetjudáð sem snertir heim allan

Eftir að hafa tryggt að árásar­maðurinn væri afvopnaður lagði Ahmed riffilinn upp að tré og rétti hendur sínar upp – líklega til að sýna lögreglu og öðrum á vettvangi að hann væri ekki hluti af árásinni.

Hálfum sólar­hring síðar streymdu þúsundir skilaboða á samfélags­miðla þar sem Ahmed var hylltur fyrir hugrekki sitt. Margir lýstu honum sem manni sem „valdi að hlaupa ekki í burtu, heldur í átt að hættunni“.

Lögreglan staðfesti að einn árásar­mannanna hefði verið skotinn til bana og annar væri lífs­hættulega særður. Rannsókn stendur enn yfir.

Ahmed al Ahmed liggur nú á sjúkra­húsi í Sydney, með skotsár á hönd.

Hann fékk meira að segja hrós frá Donald Trump, forseta Banda­ríkjanna, sem hrósaði manninum sem afvopnaði byssu­manninn og sagðist bera „mikla virðingu“ fyrir honum, en Trump hefur boðað bann á innflutning fólks frá ýmsum múslima­löndum.

„Þetta var mjög, mjög hugrakkur maður, sem réðst beint á einn skot­mannanna og bjargaði mörgum manns­lífum,“ sagði bandaríski forsetinn og bætti við að maðurinn „er núna á spítala, nokkuð alvarlega særður.“

Anthony Albanese forsætis­ráðherra hyllti hann og aðra sem „hetjur“, líkt og Chris Minns, fylkis­forsætis­ráðherra Nýja-Suður-Wales, fylkisins þar sem Bondi Beach er staðsett.

„Í allri þessari illsku, í allri þessari sorg, eru enn til dásam­legir, hugrakkir Ástralir sem eru reiðu­búnir að hætta lífi sínu til að hjálpa ókunnugum,“ sagði Minns á blaðamanna­fundi í dag.

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár