Ferdinand, Svejk og púðurtunnan

Tékkinn Jaroslav Hasék (1883–1923) skrifaði uppáhalds­bók mína, Góða dátann Svejk. Karl Ísfeld þýddi snilldar­lega. Í bókinni ræðst Hasék gegn stórum og djúpum siðferði­legum spurningum þegar kemur að stríði með hníf­beittan húmor og náttúru­lega frásagnar­gáfu að vopni. Hann lést, aðeins fertugur að aldri, áður en hann náði að klára öll bindi sögunnar; fjórum af sex var lokið. En útgáfa þess efnis sem hann hafði lokið hefur fengið heilu kynslóðirnar til þess að veltast um af hlátri og hugsa til hörmunga stríðs­tímans í Evrópu, ekki síst Austur-Evrópu. Frásagnar­gáfa Haséks var mögnuð og afköstin á stuttum ferli með ólíkindum. Hann skrifaði ríflega 1.200 smásögur, margar hverjar fullur við barborð á öldur­húsum í Prag.


Hugsað til Svejk


Að und­an­förnu hefur mér verið hugsað til þess­arar bókar. Einkum upp­hafs hennar, þegar Svejk er að láta raka sig. Þá fær hann upp­lýs­ingar um það þegar erki­her­tog­inn Franz Ferdin­and var drep­inn í Sarajevo hinn 28. júní 1914. Í kjöl­farið hefst sagan óborg­an­lega af Svejk, dát­anum sein­heppna. Hann gengur í her­deild Aust­ur­rísk-ung­verska keis­ara­dæm­is­ins og hefur síðan göngu sína í gegnum hörm­ungar fyrri heims­styrj­ald­ar­innar.

almennt_01_05_2014
almennt_01_05_2014

Á mánudaginn fékk ég stutt skilaboð í símann minn frá frétta­þjónustu Wall Street Journal, þar sem sagði orðrétt: Tugþúsundir rússneskra hermanna eru við landamæri Úkraínu. Raðir skrið­dreka sömuleiðis. Spennan magnast.

Í Úkraínu, alveg eins og Sarajevo á sumar­mánuðum 1914, er uppi ógnvænleg staða. Landið er, að því er virðist, að liðast í sundur innan frá. Þannig var staðan einnig þegar bílaröð Franz Ferdinands og fylgisveina hans varð fyrir skot­árásinni í heim­sókninni til Oskars Potiorek hers­höfðingja sem hafði boðið erki­hertoganum að vera viðstaddur hersýningu. Innanmein, efnahags­legir erfið­leikar, sundur­lyndi og sífellt vaxandi samfélags ólga breytti samfélags­gerðinni í púður­tunnu sem sprakk.

Getur svipað gerst núna? Geta stríðs­átök brotist út í Austur-Evrópu þar sem Rússar eru helsta ógnin við nágranna­ríkið Úkraínu? Er hættan á þessu ofmetin?

Spurningarnar eru komnar fram


Þessar spurn­ingar eru farnar að sjást víða í fjöl­miðla­um­ræðu á erlendum vett­vangi og ýmsir stjórn­mála­menn virð­ast telja að Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, sé hættu­legur og veru­leikafirrtur. Angela Merkel sagði það berum orðum og Carl Bildt sagði að Pútín myndi ekki linna látum fyrr en hann væri búinn að ná algjörum yfir­tökum í Kíev, höf­uð­borg Úkraínu.

Enginn getur sagt til um það með vissu hvort stríð getur brotist út en spor sögunnar hræða. Ólíkt því sem var þegar morðið á Franz Ferdinand ýtti fyrri heims­styrjöldinni af stað, þó að slíkt sé vitaskuld einföldun á flóknari atburðarás, er sterkt friðar­hvetjandi fyrir­komulag fyrir hendi sem birtist í alþjóða­pólítískum stofnunum. Þar eru Sameinuðu þjóðirnar og Evrópu­sambandið áberandi, en einnig vettvangur þar sem helstu iðnríki heimsins eiga með sér samstarf á pólitískum forsendum. Stundum þarf að minna á það hversu stutt er síðan þessi stóru og miklu framfara­skref voru stigin með stofnun Sameinuðu þjóðanna árið 1945 og Kola- og stál­bandalags Evrópu árið 1952, sem síðar varð vísir að Evrópu­sambandinu. Veiga­mesta ástæðan fyrir stofnun SÞ og ESB var viðleitni til þess að koma í veg fyrir stríð. Það hefur ekki alltaf tekist en það eru meiri líkur á að svo verði á meðan þessar mikilvægu stofnanir eru virkur vettvangur um hvernig skuli taka á vanda­málum eins og því sem nú blasir við í Úkraínu.

Saga hörmunga stríðs­átaka í Austur-Evrópu, sem Hasék hjálpar kynslóðunum að gleyma ekki í gegnum dátann Svejk, er víti til að varast. Það er huggun harmi gegn að búa við alþjóða­pólitíska samvinnu þegar samfélagslegar púður­tunnur verða til, en alveg eins og þegar Franz Ferdinand var skotinn geta hlutirnir breyst leiftur­snöggt til hins verra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár