Drottningarmaður hættur í rauðvíninu!

Líklega hafa margir Danir sperrt eyrun þegar þeir heyrðu fréttaþul danska útvarpsins, DR, tilkynna þessi tíðindi í yfirliti hádegis­fréttanna fyrir nokkrum dögum. Þessi upphafsorð reyndust líka villandi þegar betur var að gáð. Drottningar­maðurinn er sem sé ekki genginn í bindindi heldur búinn að selja víngerðar­fyrirtæki sitt í Frakk­landi, þar sem er reyndar líka framleitt hvítvín.

Henrik drottningar­maður var mikið til umfjöllunar í dönskum fjöl­miðlum í kringum 75 ára afmæli Margrétar Þórhildar. Ástæðan var sú að hann var ekki viðstaddur neinar samkomur eða fréttamanna­fundi vegna tíma­mótanna ef frá eru talin hátíðahöld í Árósum sem fram fóru viku fyrir afmælið. Á fréttamanna­fundi sem drottningin hélt nokkrum dögum fyrir afmælið greindi hún frá því að eigin­maður sinn lægi í inflúensu. Hann myndi ekki vera með í öllu afmælis­tilstandinu en hefði þó valið réttina sem snæddir yrðu í stóru afmælis­veislunum tveim, sömuleiðis drykkina.

Við þessu var ekkert að gera, allir geta jú fengið inflúensu og hún spyr hvorki um stétt né stöðu og enn síður um afmælis­daga.

Margrét Þórhildur Dana­drottning, ásamt fjöl­skyldu sinni á 75 ára afmælis­degi drottningar, og Henrik hvergi sjáanlegur. Mynd: EPA

Undrafljótur að ná sér


Hálfum sól­ar­hring eftir að síð­ari afmæl­is­veislu drottn­ingar (fjöl­skyldu­veisl­unni) lauk var Henrik hins vegar kom­inn á kreik og alla leið til Ham­borgar. Margir Danir sögð­ust hafa séð hann þar og karl­inn hefði virst hinn spræk­asti. Sama dag og þessi tíð­indi bár­ust frétt­ist svo af honum í Feneyjum og virt­ist að sögn ekki las­legur þar sem hann sprang­aði um Mark­ús­ar­torgið við vængja­slátt dúfna­sk­ar­ans sem þar gerir sig heima­kom­inn.

Margrét Þórhildur Danadrottning, ásamt fjölskyldu sinni á 75 ára afmælisdegi hennar, og Henrik hvergi sjáanlegur. Mynd: EPA
Margrét Þór­hildur Dana­drottn­ing, ásamt fjöl­skyldu sinni á 75 ára afmæl­is­degi hennar, og Henrik hvergi sjá­an­legur. Mynd: EPA

Fréttirnar af hinum undra­skjóta bata urðu til þess að ýmsir fóru að gera því skóna að drottningar­maðurinn hefði hreint ekkert verið lasinn, hann hefði einfald­lega ákveðið að skrópa í afmælinu. Öðrum fannst það af og frá að slíkt ætti sér nokkra stoð, hann hefði alltaf staðið þétt við hlið Margrétar Þórhildar og ekki komið til hugar að hlaupast undan merkjum á stór­afmælinu. Engin niður­staða fékkst þó úr þessum vanga­veltum og eins og búast mátti við heyrðist ekkert frá höllinni.

Hættur í víninu


Varla var búið að vaska upp leir­tauið og hnífa­pörin eftir afmæl­is­veislur drottn­ingar þegar Henrik bóndi hennar var aftur kom­inn á for­síður dönsku miðl­anna. Að þessu sinni voru það hvorki mat­ar­boð né ferð á Mark­ús­ar­torgið sem um var rætt heldur það að drottn­ing­ar­mað­ur­inn kunn­gjörði að hann væri ekki lengur vín­bóndi í Frakk­landi.

Hann hefði selt vínræktina sem hefði verið sitt stóra hugðar­efni í 40 ár. Hann væri kominn á níræðis­aldur (fæddur 1934) og þar sem ljóst væri að synir þeirra Margrétar kærðu sig ekki um að taka við búrekstrinum væri þetta rétt ákvörðun. Gott fólk tæki við þessum búskap og vínviðurinn væri í góðum höndum.

Chateau de Cayx


Vín­ræktin, sem drottn­ing­ar­mað­ur­inn kallar svo, fer fram á búgarð­inum Chateau de Cayx í Cahors í Suður-Frakk­landi. Þau Margrét Þór­hildur og Henrik keyptu búgarð­inn, aðal­bygg­ingin er lítil höll, fyrir um það bil 40 árum. Þá var þar fram­leitt vín sem þótti í slöku með­al­lagi og Danir, sem voru lengi að sætta sig við þennan franska sendi­ráðs­starfs­mann sem rík­is­arf­inn hafði kynnst í mat­ar­boði, gerðu óspart grín að rauð­vín­inu frá Chateau de Cayx.

Henrik drottningar­maður við sveita­höllina í Chateau de Cayx, með tveimur barna­börnum sínum. Mynd: EPA

Henrik drottningarmaður við sveitahöllina í Chateau de Cayx, með tveimur barnabörnum sínum. Mynd: EPA
Henrik drottn­ing­ar­maður við sveita­höll­ina í Chateau de Cayx, með tveimur barna­börnum sínum. Mynd: EPA

Sendiráðs­starfs­maðurinn fyrr­verandi kærði sig kollóttan um þetta tal og hægt og rólega steig vínið frá búgarði Henriks (drottningin kom aldrei nálægt búskapnum) á einkunna­kvarða víndómara og nú þykir vínið frá Chateau de Cayx í hópi þess besta frá Cahors héraðinu. „Í víngerð er þolinmæði dyggð,“ sagði Henrik á fréttamanna­fundi fyrir nokkru í tilefni útkomu bókar um búgarðinn og starfsemina þar og bætti við að 40 ár væru ekki langur tími í því samhengi. Hinir nýju eigendur hafa leyfi til að nota merkingarnar á flöskunum áfram óbreyttar og Henrik kvaðst mjög ánægður með það, og stoltur.

Eiga sjálfa höllina áfram


Þótt vín­fram­leiðslan sé ekki lengur í höndum Henriks hafa þau hjónin ekki sagt skilið við Chateu de Cayx. Þau eiga höll­ina áfram og hyggj­ast nota hana sem sum­ar­dval­ar­stað fyrir fjöl­skyld­una eins og þau hafa lengi gert. Höllin sem var í mik­illi nið­ur­níðslu þegar þau hjónin keyptu búgarð­inn hefur verið gerð upp og er í „topp­standi“ eins og Henrik orðað það þegar hann sagði frá ákvörð­un­inni um aðrir tækju við vín­rækt­inni.

Hann sagði að nýju eigendurnir hefðu spurt sig hvort hann myndi verða þeim innan handar og gefa góð ráð. hann hefði svarað því til að það skyldi hann glaður gera. Gefa góð ráð, án þess að senda reikning fyrir ráðgjöfinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár