Segir lýðskrumara vilja umbylta fiskveiðistjórnarkerfinu vegna spillingarmáls í Namibíu

Leið­ara­höf­undur Morg­un­blaðs­ins gagn­rýnir þá sem vilja nota Sam­herj­a­málið til að breyta fisk­veiðis­stjórn­un­ar­kerf­inu. Frumvarp var lagt fram á föstu­dag sem umbyltir því og for­sæt­is­ráð­herra berst fyrir auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá.

Davíð Oddsson er annar ritstjóra Morgunblaðsins.
Davíð Oddsson er annar rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins. Mynd: Samsett

„Spill­ing­ar­mál í Namibíu, sem hefur teng­ingar hingað til lands en þó óljósar og fjarri því upp­lýstar að fullu, hefur laðað fram fjölda lýð­skrumara hér á landi, ekki síst úr stétt stjórn­mála­manna sem hugsa gott til glóð­ar­innar eftir langa eyði­merk­ur­göngu. Í stað þess að bíða eftir að málið upp­lýs­ist eftir rann­sókn yfir­valda hér og erlendis geys­ast þessir stjórn­mála­menn fram nú og krefj­ast þess jafn­vel að íslenska fisk­veiði­stjórn­ar­kerf­inu verði bylt vegna spill­ing­ar­máls­ins í Namibíu.“ Þetta segir í leið­ara Morg­un­blaðs­ins í dag.

Þar segir að spill­ing­ar­málið umrædda, sem snýst um ætl­aðar mútu­greiðslur íslenska fyr­ir­tæk­is­ins Samherja til namibískra stjórn­mála­manna og ein­stak­linga þeim tengdum, hafi óljósar teng­ingar hingað til lands og sé fjarri því upp­lýst að fullu. Leið­ara­höf­und­ur­inn gerir einnig miklar athuga­semdir við að stjórn­mála­menn segi að málið kalli á breyt­ingar á stjórn­ar­skrá, með þeim hætti að auð­linda­á­kvæði sem tryggi sam­eign þjóð­ar­innar á fisk­veiði­auð­lind­inni verði bætt þar við.

Búið er að ákæra sex manns, þar á meðal tvo fyrr­ver­andi ráð­herra, fyrir að hafa þegið 860 millj­ónir króna í greiðslur fyrir að tryggja félögum tengdum Sam­herja eft­ir­­sóttan kvóta í land­in­u. Sam­herj­a­málið er einnig til rann­sóknar í Nor­egi, þar sem fyr­ir­tækið hefur verið í banka­við­skiptum við DNB, og á Íslandi. Á meðal þess sem er rann­sakað er meint pen­inga­þvætti og skatta­snið­ganga.

Rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins segir að þessi fram­ganga þeirra sem hann kallar lýð­skrumara, og hafa farið fram á að fisk­veiðis­stjórn­un­ar­kerf­inu verði breytt, sé svo fjar­stæðu­kennd að með ólík­indum sé að það nái umræðu. „Ein atvinnu­grein hér á landi býr við það að vera sér­stak­lega skatt­lögð umfram nokkra aðra. Þetta er sjáv­ar­út­veg­ur­inn en sem kunn­ugt er leggur ríkið sér­stakt „veiði­gjald“, sem þykir hljóma betur en sér­stakur skattur á fisk­veiðar, á grein­ina.[...]Þrátt fyrir þennan ofur­skatt reyna lýð­skrumarar nú eina ferð­ina enn að ráð­ast gegn þess­ari und­ir­stöðu­at­vinnu­grein þjóð­ar­innar og nota til þess ömur­legt mál í fjar­lægu landi. Ætlunin virð­ist vera að hækka skatta á grein­ina og helst að bylta fisk­veiði­stjórn­ar­kerf­inu,[...]Mik­il­vægt er að botn fáist í það mál sem upp kom í Namibíu en það þarf að ger­ast í rétt­ar­kerf­inu en ekki með aftökum án dóms og laga. Ekki er síður mik­il­vægt að lýð­skrumarar gæti sín áður en þeir hafa valdið þjóð­inni mun meira tjóni með óábyrgu fram­ferði sínu en þetta til­tekna mál gat nokkru sinni gert án þeirra atbeina.“

Þorri eig­enda Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, eru tengdir sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum. Samherji var lengi vel á meðal eig­enda Árvakurs en seldi hlut sinn til Eyþórs Arnalds með því að lána honum 325 millj­ónir króna til þeirra kaupa. Lánið er ógreitt en er á gjald­daga á næsta ári. Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstri Árvakurs árið 2009, og fram til loka síð­asta árs, hefur útgáfu­fé­lagið tapað 2,2 millj­örðum króna. Í fyrra nam tapið 415 millj­ónum króna.

Frumvarp sem umbyltir kerfinu

Á laug­ar­dag greindi Kjarninn frá því að þing­menn úr þremur stjórn­ar­and­stöðu­flokkum: Viðreisn, Sam­fylk­ingu og Pírötum, hafa lagt fram frum­varp sem felur í sér kúvend­ingu á því kerfi sem er við lýði vegna nýt­ing­ar­réttar á fisk­veiði­auð­lind­inni. Í frétta­til­kynn­ingu sem Viðreisn sendi frá sér vegna þessa, en allur þing­flokkur þess flokks stendur að frum­varp­inu, sagði að frum­varpið hefði „sjaldan verið jafn mik­il­vægt og nú, í ljósi frétta af úr svo­nefndum Sam­herj­a­skjölum.“

Í frum­varp­inu fel­ast þrjár megin breyt­ingar. Í fyrsta lagi verði þeir aðilar skil­greindir sem tengdir sem eiga að minnsta kosti tíu pró­sent hluta­fjár í öðrum sem heldur á meira en eitt pró­sent kvóta. Sama gildi um kröfur sem geri það að verkum að ætla megi að eig­andi þeirra hafi áhrif á rekstur aðila sem ræður yfir eitt pró­sent hluta­fjár eða meira. Samkvæmt gild­andi lögum þarf sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki að eiga meiri­hluta í annarri útgerð til að hún telj­ist tengd, en eft­ir­lit með því hvað telj­ist tengdir aðilar hefur auk þess verið í lama­sessi.

Í öðru lagi er lagt til að allir þeir sem ráða yfir eitt pró­sent heild­ar­afla­hlut­deildar þurfi að stofna hluta­fé­lag um rekst­ur­inn og skrá félagið á markað. Það myndi þýða, að óbreyttu, að 21 sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki þyrftu að skrá sig á markað til við­bótar við Brim, sem er eina fyr­ir­tækið sem heldur á kvóta sem er skráð í dag.

Í þriðja lagi leggur frum­varpið til að að settar verði tak­mark­anir við hluta­fjár­eign eða atkvæð­is­rétt ein­stakra hlut­hafa og tengdra aðila í útgerðum sem fara með átta til tólf pró­sent af kvóta. Í frum­varp­inu segir að í slíkum útgerð­ar­fyr­ir­tækjum eigi eng­inn aðili, ein­stak­lingur, lög­að­ili eða tengdir aðilar, að eiga „meira en tíu pró­sent af hlutafé, stofnfé eða atkvæð­is­rétti í við­kom­andi aðila. Þessu ákvæði er ætlað að koma í veg fyrir frek­ari sam­þjöppun eign­ar­að­ildar í allra stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­unum.“

Ljóst er að frum­varpið myndi umbylta því kerfi sem nú er við lýði, þar sem mikil sam­þjöppun hefur átt sér stað á meðal þeirra sem hafa fengið úthlutað kvóta, eða hafa keypt úthlut­aðan kvóta af öðrum. Á meðal þeirra sem myndu bera skertan hag frá borði þar eru margir eig­endur Árvakurs.

Forsætisráðherra vill auðlindaákvæði

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ræddi einnig þessi mál í þætt­inum Sprengisandi á Bylgj­unni um helg­ina. Þar sagði hún að ef nýtt auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skránni yrði sam­þykkt yrði annað hvort hægt að segja upp veiði­heim­ildum í sjáv­ar­út­vegi eða þær gerðar tíma­bundnar.

Þegar frum­varp um málið var kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda kom fram að lagt verður til að við stjórn­skipular­lög bæt­ist að auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyri íslensku þjóð­inni. Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi séu ekki háð einka­eigna­rétti þjóð­ar­eign og eng­inn geti fengið þessi gæði til var­an­legrar eignar eða afnota.

Katrín sagði í þætt­inum að með þessum breyt­ingum verði tryggt að nátt­úru­auð­lindir, eins og fisk­ur­inn í sjónum, verði ekki afhentar neinum með var­an­legum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár