Þrír flokkar leggja til þrjár leiðir sem brjóta upp tangarhald á sjávarútvegi

Verði nýtt frum­varp að lögum verður tang­ar­hald nokk­urra hópa á íslenskum sjáv­ar­út­vegi brotið upp. Allar útgerðir sem halda á meira en eitt pró­sent kvóta verða að skrá sig á markað og skil­yrði um hvað telj­ist tengdir aðilar þrengd mjög.

Þingmenn úr þremur stjórn­ar­and­stöðu­flokkum: Viðreisn, Sam­fylk­ingu og Pírötum, hafa lagt fram frum­varp sem felur í sér kúvend­ingu á því kerfi sem er við lýði vegna nýt­ing­ar­réttar á fisk­veiði­auð­lind­inni.

Í frum­varp­inu fel­ast þrjár megin breyt­ingar. Í fyrsta lagi verði þeir aðilar skil­greindir sem tengdir sem eiga að minnsta kosti tíu pró­sent hluta­fjár í öðrum sem heldur á meira en eitt pró­sent kvóta. Sama gildi um kröfur sem geri það að verkum að ætla megi að eig­andi þeirra hafi áhrif á rekstur aðila sem ræður yfir eitt pró­sent hluta­fjár eða meira. Samkvæmt gild­andi lögum þarf sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki að eiga meiri­hluta í annarri útgerð til að hún telj­ist tengd, en eft­ir­lit með því hvað telj­ist tengdir aðilar hefur auk þess verið í lama­sessi.

Í öðru lagi er lagt til að allir þeir sem ráða yfir eitt pró­sent heild­ar­afla­hlut­deildar þurfi að stofna hluta­fé­lag um rekst­ur­inn og skrá félagið á markað. Það myndi þýða, að óbreyttu, að 21 sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki þyrftu að skrá sig á markað til við­bótar við Brim, sem er eina fyr­ir­tækið sem heldur á kvóta sem er skráð í dag.

Í þriðja lagi leggur frum­varpið til að að settar verði tak­mark­anir við hluta­fjár­eign eða atkvæð­is­rétt ein­stakra hlut­hafa og tengdra aðila í útgerðum sem fara með átta til tólf pró­sent af kvóta. Í frum­varp­inu segir að í slíkum útgerð­ar­fyr­ir­tækjum eigi eng­inn aðili, ein­stak­lingur, lög­að­ili eða tengdir aðilar, að eiga „meira en tíu pró­sent af hlutafé, stofnfé eða atkvæð­is­rétti í við­kom­andi aðila. Þessu ákvæði er ætlað að koma í veg fyrir frek­ari sam­þjöppun eign­ar­að­ildar í allra stærstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­unum.“

Allur þing­flokkur Við­reisnar stendur að frum­varp­inu og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður flokks­ins, er fyrsti flutn­ings­maður þess. Auk þeirra eru Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, og Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, flutn­ings­menn þess. Flokk­arnir þrír sem standa að frum­varp­inu hafa verið að mæl­ast með á bil­inu 35 til 38 pró­sent sam­eig­in­legt fylgi í könn­unum und­an­farna mán­uði og starfa þegar saman í meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, ásamt Vinstri grænum.

Sagt aldrei mikilvægara út af Samherjaskjölunum

Í frétta­til­kynn­ingu frá Viðreisn vegna fram­lagn­ingu frum­varps­ins segir að þótt frum­varpið hafi verið í ríf­lega ár í und­ir­bún­ingi hjá Viðreisn „þá hefur það sjaldan verið jafn mik­il­vægt og nú, í ljósi frétta af úr svo­nefndum Sam­herj­a­skjölum.“

Ljóst er að frum­varpið myndi kúvenda því kerfi sem nú er við lýði, þar sem mikil sam­þjöppun hefur átt sér stað á meðal þeirra sem hafa fengið úthlutað kvóta, eða hafa keypt úthlut­aðan kvóta af öðrum.

Til að veiða fisk í íslenskri lög­sögu þarf að kom­ast yfir úthlut­aðan kvóta. Slíkur er að uppi­stöðu í höndum nokk­urra fyr­ir­tækja­hópa sam­kvæmt yfir­liti um úthlutun sem Fiski­stofa birti í sept­em­ber. Lög segja að tengdir aðilar megi ekki halda á meira en 12 pró­sent kvót­ans hverju sinni.

Eins og lögin eru í dag má einn aðili halda á allt að tólf pró­sent af kvóta. Eftirlit með því hvort að stærstu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin hafi farið yfir það mark hefur hins vegar verið í molum.

Kanna ekki yfirráð tengdra aðila

Rík­is­end­ur­skoðun benti á það í stjórn­sýslu­út­tekt á Fiski­stofu, sem birt var í jan­úar síð­ast­liðnum, að hún kanni ekki hvort yfir­ráð tengdra aðila í sjáv­ar­út­vegi yfir afla­hlut­deildum væri í sam­ræmi við lög. Þ.e. að eft­ir­lits­að­il­inn með því að eng­inn hópur tengdra aðila ætti meira en 12 pró­sent af heild­ar­afla væri ekki að sinna því eft­ir­liti í sam­ræmi við lög. Rík­is­end­ur­skoðun sagði í skýrslu sinni að ráð­ast þyrfti í end­ur­skoðun á ákvæðum laga um stjórn fisk­veiða um „bæði yfir­ráð og tengsl aðila svo tryggja megi mark­visst eft­ir­lit með sam­þjöppun afla­heim­ilda“.

Vegna þess­arar stöðu, þar sem eft­ir­litið hefur verið í molum, þá hefur átt sér stað mikil sam­þjöppun í geir­anum.

Í sept­em­ber 2019 var Sam­herji, stærsta útgerð­ar­fyr­ir­tæki lands­ins sem nýlega var ásakað um vafa­sama og mögu­lega ólög­lega við­skipta­hætti víða um heim, með 7,1 pró­­sent úthlut­aðs kvót­a. Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­ar, sem er í 100 pró­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­sent kvót­ans og Sæból fjár­fest­inga­fé­lag heldur á 0,64 pró­sent hans. Síld­­ar­vinnslan heldur á 5,3 pró­­sent allra afla­heim­ilda og sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækið Berg­­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar.

Sam­an­lagt er afla­hlut­­deild þess­­ara aðila er því rúm­lega 16,6 pró­­sent.

Fleiri líka stórir

Brim, eina skráða sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið, er eitt og sér komið yfir kvóta­há­markið í ákveð­inni teg­und og hefur sex mán­uði til að koma sér undir það. Alls hélt félagið á 10,4 pró­sent alls kvóta í byrjun sept­em­ber.

Stærsti eig­andi Brim er Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur, sem á um 46,26 pró­­sent hlut í því félagi eftir að hafa selt stóran hlut til KG Fisk­verk­unar fyrir skemmstu. Það félag var 1. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn með 3,9 pró­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Auk þess var félagið Ögur­vík með 1,3 pró­­sent afla­hlut­­deild. Stærstu ein­­stöku eig­endur þess eru Guð­­mundur Krist­jáns­­son, aðal­­eig­andi Útgerð­­ar­­fé­lags Reykja­víkur og for­­stjóri Brims, og tvö syst­k­ini hans með sam­an­lagðan 36,66 pró­­sent end­an­­legan eign­­ar­hlut. Eigandi KG Fisk­verk­unar er Hjálmar Þór Krist­jáns­son, bróðir Guð­mundar.

Sam­an­lagður kvóti þess­­ara þriggja félaga, sem eru ekki skil­­greind sem tengd, var því 15,6 pró­­sent í byrjun sept­­em­ber síð­­ast­lið­ins.

Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga á síðan FISK Seafood, sem heldur á 5,3 pró­­sent heild­­ar­kvót­ans auk þess sem FISK á allt hlutafé í Soff­an­­ías Cecils­­son hf., en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­­sent kvót­ans.. FISK á líka 32,9 pró­­sent í Vinnslu­­stöð­inni í Vest­­manna­eyjum sem er með fimm pró­­sent heild­­ar­afla­hlut­­deild. Sam­tals nemur heild­­ar­kvóti þess­­ara þriggja aðila 10,6 pró­­sent.

Vísir og Þor­björn í Grinda­vík halda síðan sam­an­lagt á 8,4 pró­­sent af heild­­ar­kvót­­an­um, en þau til­kynntu fyrr á þessu ári að þau ætli sér að sam­ein­ast. Sam­an­lagt eru þessar fjórar blokkir á tæp­lega 53 pró­sent kvót­ans hið minnsta.

Á meðal ann­arra útgerða sem myndu þurfa að skrá sig á markað ef frum­varpið yrði að lögum eru Skinney-Þinganes (4,2 pró­sent af kvóta), Ísfélag Vest­manna­eyja (3,8 pró­sent af kvóta) og Rammi hf. (3,5 pró­sent af kvóta).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár