Árvakur hefur tapað 2,2 milljörðum króna frá 2009

415 millj­óna króna tap á rekstri Árvakurs, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, á síð­asta ári var stað­fest í frétt í blað­inu í dag. Hlut­hafar hafa lagt félag­inu til 1,6 millj­arða króna á ára­tug.

Árvakur, útgáfu­fé­lag Morg­un­blaðs­ins, mbl.is og K100, tap­aði 415 millj­ónum króna í fyrra. Þetta er stað­fest í frétt sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í morgun. Kjarninn hafði greint frá því 10. ágúst síð­ast­lið­inn að lesa mætti það út úr árs­reikn­ingi eins stærsta hlut­hafa eig­anda Árvakurs að tapið hefði verið um 414 millj­ónir króna.

Árvakur hefur glímt við mik­inn halla­­­rekstur á und­an­­­förnum árum og hlut­hafar þess hafa ítrekað þurft að leggja útgáf­unni til fé.

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstr­inum árið 2009 og fram til loka árs 2018 tap­aði félagið um 2,2 millj­­­­örðum króna miðað við ofan­greinda útreikn­inga á tapi Árvak­urs í fyrra. Tapið eykst umtals­vert á milli ára, en Árvakur tap­aði 284 millj­ónum króna árið 2017.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins er haft eftir Haraldi Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóra Árvakurs og ann­ars rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, að rekstr­ar­um­hverfið sé erfitt en að búið sé að ráð­ast í umfangs­miklar aðgerðir til að hag­ræða í rekstri félags­ins sem séu farnar að skila árangri. „Sam­keppn­in við Rík­is­út­varpið hef­ur orðið sí­fellt erf­ið­ari, en nei­kvæð umræða á vinnu­mark­aði, sem enn held­ur áfram þó að stærstu aðilar á vinnu­mark­aðnum hafi samið, hef­ur auk stórra áfalla í at­vinnu­líf­inu haft veru­lega nei­kvæð áhrif á aug­lýs­inga­mark­aði og þar með á rekst­ur fjöl­miðla.“

Hlutafé aukið í byrjun árs

Kjarn­inn greindi frá því í febr­­úar síð­­ast­liðnum að hlutafé í Þór­s­­mörk, eig­anda Árvak­­urs, hefði verið aukið um 200 millj­­ónir króna þann 21. jan­úar 2019. Auk þess var sam­­­þykktum félags­­­ins breytt á þann veg að stjórn þess er heim­ilt að hækka hluta­­­féð um allt að 400 millj­­­ónir króna til við­­­bótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heim­ild gildir til árs­loka 2019.

Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga (KS) og félög tengd Ísfé­lagi Vest­­manna­eyja lögðu til 80 pró­­sent þeirra 200 millj­­óna króna sem settar voru inn í rekstur Árvak­­urs. Alls lögðu þessar tvær blokkir til 160 millj­­ónir króna af millj­ón­unum 200. Þær 40 millj­­ónir króna sem upp á vant­aði dreifð­ust á nokkra smærri hlut­hafa en eng­inn nýr hlut­hafi bætt­ist í hóp­inn við hluta­fjár­­aukn­ing­una.

Alls tóku fimm skráðir hlut­hafar ekki þátt í hluta­fjár­­aukn­ing­unni og minn­k­aði hlut­­falls­­leg eign þeirra sam­hliða henni. Á meðal þeirra var félagið Ramses II ehf., í eigu Eyþórs Arn­alds, odd­vita Sjálf­­stæð­is­­flokks í borg­­ar­­stjórn Reykja­vík­­­ur. Eign­­ar­hlutur Ramses hefur skroppið saman úr 22,87 pró­­sentum í 20,05 pró­­sent. Stundin hefurgreint frá því að Eyþór hafi keypt hlut sinn í Árvakri með 325 milljón króna kúlu­láni frá félagi í eigu Sam­herja. Þar hefur meðal ann­­ars komið fram að Eyþór hafi aldrei viljað upp­­lýsa um hvernig hann hafi fjár­­­magnað kaupin á hlutnum og sagt að við­­skiptin væru trún­­að­­ar­­mál.

Flestir minni eig­endur Þór­s­­merkur eru tengdir sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækj­­­um.

Færðu niður hluta­féð um millj­arð

Frá því að nýir eig­endur tóku við Árvakri árið 2009 hafa þeir lagt félag­inu til rúm­­lega 1,6 millj­­arð króna. Þar af nemur fram­lagt hlutafé KS um 324 millj­­ónum króna og fram­lagt hlutafé tveggja félaga sem tengj­­ast Ísfé­lag­inu um 484 millj­­ónum króna. Annað þeirra er félagið Hlynur A en hitt er Ísfé­lagið sjálft.

Í maí síð­ast­liðnum var ákveðið að lækka hlutafé í Þórs­mörk um einn millj­arð króna. Sam­kvæmt til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skráar var það gert til jöfn­unar á tapi.

Við það lækk­aði hlutafé Þórs­merkur úr 1,6 millj­arði króna í 606 millj­ónir króna. Það þýðir að eig­endur félags­ins hafa afskrifað millj­arð af því fjár­magni sem þeir settu inn í félag­ið.

Eign­­ar­hald Þór­s­­merkur, eiganda Árvakurs, er eft­ir­far­andi:

  • Ramses II ehf., eig­andi Eyþór Lax­­dal Arn­alds, 20,05 pró­­sent
  • Íslenskar sjá­v­­­ar­af­­urðir ehf., ­forsv.m. Sig­­ur­jón Rafns­­son, 20,00 ­pró­­sent
  • Hlyn­ur A ehf., ­forsv.maður­ Guð­­björg Matt­h­í­a­s­dótt­ir, 16,45 ­pró­­sent
  • Ísfé­lag Vest­­manna­eyja hf., ­forsv.maður­ ­Stefán Frið­­riks­­son, 13,43 ­pró­­sent
  • Legalis s­f., ­forsv.maður­ ­Sig­­ur­­björn Magn­ús­­son, 12,37 ­pró­­sent
  • Rammi hf., ­forsv.maður­ Ólafur Mart­eins­­son, 6,14 ­pró­­sent
  • Þingey ehf., ­forsv.maður­ Að­al­­steinn Ing­­ólfs­­son, 3,59 ­pró­­sent
  • Stál­­skip ehf., ­forsv.maður­ Hall­­dór Krist­jáns­­son, 3,08 ­pró­­sent
  • Brekku­hvarf ehf., ­forsv.maður­ Ás­­geir Bolli Krist­ins­­son, 2,05 ­pró­­sent
  • Fari ehf., ­forsv.maður­ Jón Pálma­­son, 1,54 ­pró­­sent
  • Hrað­fryst­i­­húsið – Gunn­vör hf., ­forsv.maður­ Einar Valur Krist­jáns­­son, 1,30 ­pró­­sent
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár