Eigandi Árvakurs tapaði hundruðum milljóna í fyrra

Hlut­deild eins stærsta eig­anda Árvakurs, útgáfu­fé­lags Morg­un­blaðs­ins, í tapi þess á síð­asta ári var 61,8 millj­ónir króna. Sá eig­andi á 16,45 pró­sent hlut og heild­ar­tap sam­kvæmt því var yfir 400 millj­ónir króna.

Þórsmörk ehf., eign­ar­halds­fé­lagið sem á Árvakur, tap­aði um 414 millj­ónum króna á árinu 2018. Árvakur er útgáfu­lega Morg­un­blaðs­ins, mbl.is og K100. Þetta má lesa úr árs­reikn­ingi Hlyns A ehf. eins stærsta eig­anda Þórs­merkur. Þar kemur fram að hlut­deild Hlyns A í tapi Þórs­merkur í fyrra hafi verið 61,8 millj­ónir króna.

Hlynur A er í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, aðal­eig­anda Ísfé­lags­ins, og barna hennar. Eina eign Hlyns A í lok síð­asta árs var 16,45 pró­sent hlutur í Þórsmörk og tapið af rekstri Hlyns A reikn­ast því 16,45 pró­sent af heild­ar­tapi Þórs­merkur. Þegar tap Hlyns A er upp­reiknað út frá hlut­deild félags­ins kemur í ljós að heild­ar­tap Þórs­merkur var um 414 millj­ónir króna.

[adspot]Hvorki Þórs­mörk né Árvak­ur hafa skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2018, en útgáfu­fé­lagið er eina eign Þórs­merk­ur. Und­an­farin ár hafa upp­lýs­ingar í árs­reikn­ingum félaga sem eiga í Þórs­mörk hins vegar sýnt hvert tap Árvak­urs er. Fyrir árið 2016 og 2017 var t.d. tap Hlyns A vegna hlutar félags­ins í Þórs­mörk í fullu sam­ræmi við það tap sem Árvakur opin­ber­aði þegar árs­reikn­ingur þess félags var birt­ur.

Yfir tveggja milljarða tap á áratug

Árvakur hefur glímt við mik­inn halla­­rekstur á und­an­­förnum árum og hlut­hafar þess hafa ítrekað þurft að leggja útgáf­unni til fé.

Frá því að nýir eig­endur tóku við rekstr­inum árið 2009 og fram til loka árs 2018 tap­aði félagið um 2,2 millj­­­örðum króna miðað við ofan­greinda útreikn­inga á tapi Árvakurs í fyrra. Tapið eykst umtals­vert á milli ára, en Árvakur tap­aði 284 millj­ónum króna árið 2017.

Kjarn­inn greindi frá því í febr­úar síð­ast­liðnum að hlutafé í Þórs­mörk, eig­anda Árvak­urs, hefði verið aukið um 200 millj­ónir króna þann 21. jan­úar 2019. Auk þess var sam­­þykktum félags­­ins breytt á þann veg að stjórn þess er heim­ilt að hækka hluta­­féð um allt að 400 millj­­ónir króna til við­­bótar með útgáfu nýrra hluta. Sú heim­ild gildir til árs­loka 2019.

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga (KS) og félög tengd Ísfé­lagi Vest­manna­eyja lögðu til 80 pró­sent þeirra 200 millj­óna króna sem settar voru inn í rekstur Árvak­urs. Alls lögðu þessar tvær blokkir til 160 millj­ónir króna af millj­ón­unum 200. Þær 40 millj­ónir króna sem upp á vant­aði dreifð­ust á nokkra smærri hlut­hafa en eng­inn nýr hlut­hafi bætt­ist í hóp­inn við hluta­fjár­aukn­ing­una.

Alls tóku fimm skráðir hlut­hafar ekki þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni og minnk­aði hlut­falls­leg eign þeirra sam­hliða henni. Á meðal þeirra var félagið Ramses II ehf., í eigu Eyþórs Arn­alds, odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur. Eign­ar­hlutur Ramses hefur skroppið saman úr 22,87 pró­sentum í 20,05 pró­sent. Stundin hefur greint frá því að Eyþór hafi keypt hlut sinn í Árvakri með 325 milljón króna kúlu­láni frá félagi í eigu Sam­herja. Þar hefur meðal ann­ars komið fram að Eyþór hafi aldrei viljað upp­lýsa um hvernig hann hafi fjár­magnað kaupin á hlutnum og sagt að við­skiptin væru trún­að­ar­mál.

Flestir minni eig­endur Þórs­merkur eru tengdir sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækj­­um.

Færðu niður hlutaféð um milljarð

Frá því að nýir eig­endur tóku við Árvakri árið 2009 hafa þeir lagt félag­inu til rúm­lega 1,6 millj­arð króna. Þar af nemur fram­lagt hlutafé KS um 324 millj­ónum króna og fram­lagt hlutafé tveggja félaga sem tengj­ast Ísfé­lag­inu um 484 millj­ónum króna. Annað þeirra er áður­nefnt Hlynur A en hitt er Ísfé­lagið sjálft.

[adspot]Í maí síð­ast­liðnum var ákveðið að lækka hlutafé í Þórsmörk um einn millj­arð króna. Samkvæmt til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skráar var það gert til jöfn­unar á tapi.

Við það lækk­aði hlutafé Þórs­merkur úr 1,6 millj­arði króna í 606 millj­ónir króna. Það þýðir að eig­endur félags­ins hafa afskrifað millj­arð af því fjár­magni sem þeir settu inn í félagið.

Virði Þórs­merkur hefur farið hratt lækk­andi í bókum Hlyns A síð­ustu ár. Félagið mat eign­ar­hlut sinn í Þórs­mörk á 177,7 millj­ónir króna í lok árs 2016 á 135 millj­ónir króna ári síðar. Um síð­ustu ára­mót var hlut­ur­inn met­inn á 99,8 millj­ónir króna sem þýðir að heild­ar­virði Þórs­merk­ur, og þar af leið­andi Árvak­urs, hefur farið úr um 1.080 millj­ónum króna í um 606 millj­ónir króna á einu ári. Það er í sam­ræmi við virði alls hluta­fjár Þórs­merkur eftir að það var lækkað um millj­arð króna í maí.

Eign­ar­hald Þórs­merkur er eft­ir­far­andi:

  • Ramses II ehf., eig­andi Eyþór Lax­dal Arn­alds, 20,05 pró­sent
  • Íslenskar sjáv­ar­af­urðir ehf., ­forsv.m. Sig­ur­jón Rafns­son, 20,00 ­pró­sent
  • Hlyn­ur A ehf., ­forsv.maður­ Guð­björg Matth­í­as­dótt­ir, 16,45 ­pró­sent
  • Ísfé­lag Vest­manna­eyja hf., ­forsv.maður­ ­Stefán Frið­riks­son, 13,43 ­pró­sent
  • Legalis s­f., ­forsv.maður­ ­Sig­ur­björn Magn­ús­son, 12,37 ­pró­sent
  • Rammi hf., ­forsv.maður­ Ólafur Mart­eins­son, 6,14 ­pró­sent
  • Þingey ehf., ­forsv.maður­ Að­al­steinn Ing­ólfs­son, 3,59 ­pró­sent
  • Stál­skip ehf., ­forsv.maður­ Hall­dór Krist­jáns­son, 3,08 ­pró­sent
  • Brekku­hvarf ehf., ­forsv.maður­ Ás­geir Bolli Krist­ins­son, 2,05 ­pró­sent
  • Fari ehf., ­forsv.maður­ Jón Pálma­son, 1,54 ­pró­sent
  • Hrað­frysti­húsið – Gunn­vör hf., ­forsv.maður­ Einar Valur Krist­jáns­son, 1,30 ­pró­sent
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár