Þingveisla í skugga brottvísana

Þingmenn komu saman í gala­kvöld­verð á Reykja­vík Natura við Öskju­hlíð á mið­viku­dag. Veislan hefur verið árlegur við­burður en hefur fallið niður síð­ustu tvö ár vegna heims­far­ald­urs­ins. Nú fór hún fram í skugga mik­illa átaka, bæði innan og utan rík­is­stjórnar, um brott­vísun 300 hæl­is­leit­enda.

Ráðherrann
Ráð­herr­ann Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur setið undir gagn­rýni bæði innan stjórnar og utan vegna ákvörð­unar sinnar um að nú skyldi 300 ein­stak­lingum vísað úr landi. Aðgerðir til að stemma stigu við útbreiðslu COVID höfðu áður hamlað brott­vís­un­ina. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Þingmenn komu saman í kvöld­verð­ar­boð á Reykja­vík Natura á mið­viku­dag í fyrsta sinn síðan heims­far­aldur Covid-19 skall á. Veislan hefur verið haldin árlega en þurfti að þola frestun líkt og margt annað í sam­fé­lag­inu. Hún fór fram í skugga tals­verðra átaka bæði innan og utan rík­is­stjórn­ar­innar vegna ann­ars við­burðar sem líka hafði verið frestað vegna Covid: brott­vís­unar um 300 ein­stak­linga sem leitað höfðu hælis á Íslandi. 

Stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn hafa haldið uppi háværum mót­mælum vegna ákvörð­unar Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra. Óvænt steig annar ráð­herra, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, fram og sagði kollega sinn hafa farið með rangt mál þegar hann sagði sam­stöðu innan rík­is­stjórn­ar­innar um brott­vís­an­irnar. Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og sam­flokks­kona Guð­mundar Inga í Vinstri grænum, útskýrði það svo síðar að skiptar skoð­anir væru á mál­inu innan stjórn­ar­innar.

Svo virð­ist sem skuggi hafi ekki fallið á gleð­skap­inn þrátt fyrir þessi átök þar sem þing­menn og makar, auk for­seta Íslands, gæddu sér á mat sem var bæði nýstár­legur og þjóð­legur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár