Joe Biden ætlar ekki að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna

Joe Biden, vara­forseti Banda­ríkjanna, ætlar ekki að bjóða sig fram sem forseta­fram­bjóðandi demókrata­flokksins í Banda­ríkjunum. Hann tilkynnti þetta á blaðamanna­fundi í Rósa­garðinum í Hvíta húsinu rétt í þessu, ásamt konu sinni Jill og Barack Obama Bandaríkja­forseta.

Hann ætlar hins vegar að taka virkan þátt í kosninga­baráttunni með því að láta í sér heyra og reyna að hafa sem mest áhrif, segir hann. Hann hafi hugsað málið með fjöl­skyldu sinni undan­farna mánuði og komist að þeirri niður­stöðu að bjóða sig ekki fram, tíminn fyrir það sé liðinn.

Biden ætlar að nota síðustu fimmtán mánuði sína í embætti vara­forseta til þess að vinna að barátt­unni gegn krabba­meini. Biden-hjónin misstu son sinn, Beau, úr krabba­meini í vor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár