Telur virkjunaráform á miðhálendinu samræmast vel stefnu ríkisstjórnarinnar um verndun miðhálendisins

„Mig langar sér­stak­lega að fagna því að sú til­laga sem lögð er fram hérna er í góðu sam­ræmi við þá stefnu þess­arar rík­is­stjórnar að vinna að vernd mið­há­lend­is­ins,“ sagði Nichole Leigh Mosty, þing­kona Bjartrar fram­tíðar, í umræðum um ramma­á­ætlun.

Nichole Leigh Mosty, þing­kona Bjartrar fram­tíðar, telur að þings­á­lykt­un­ar­til­laga Bjartar Ólafs­dóttur umhverf­is­ráð­herra um ramma­á­ætlun sam­ræm­ist vel mark­miðum rík­is­stjórn­ar­innar um vernd mið­há­lend­is­ins. Á meðal þess sem lagt er til í ramma­á­ætl­un­inni er að Skrokkalda á Suð­ur­landi fær­ist úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk svo unnt verði að ráð­ast þar í virkj­ana­fram­kvæmdir á næstu árum. Skrokkalda er á mið­há­lend­inu og fyr­ir­hug­uðum virkj­ana­fram­kvæmdum á svæð­inu munu fylgja 1 kíló­metra skurður vestan við Sprengisands­leið, hlað­hús, spennir og jarð­strengur. 

„Mig langar sér­stak­lega að fagna því að sú til­laga sem lögð er fram hérna er í góðu sam­ræmi við þá stefnu þess­arar rík­is­stjórnar að vinna að vernd mið­há­lend­is­ins. Á mið­há­lendi Íslands eru einar stærstu óbyggðir Evrópu,“ sagði Nichole þegar rætt var um ramma­á­ætl­un­ina á Alþingi í síð­ustu viku.

„Verndar- og verð­gildi óbyggða fer stöðugt vax­andi þar sem óbyggðum svæðum fer hratt fækk­andi á heims­vísu. Hér er því um fágæta og tak­mark­aða auð­lind að ræða.“ Fagnaði hún því sér­stak­lega að þrjú vatna­svið á hálend­inu, Hér­aðs­vötn, Skjálf­anda­fljót og Skaftá, yrðu sett í vernd­ar­flokk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár