Xiaomi verðmetið á 5.400 milljarða króna

Kínverski snjallsíma­fram­leiðandinn Xiaomi er í fjár­mögnunar­hugleiðingum og safnar nú nýju hlutafé upp á einn milljarð Bandaríkja­dala, um 120 milljarða íslenskra króna, þar sem ráð er fyrir því gert að heildar­virði félagsins sé 45 milljarðar Bandaríkja­dala, eða sem nemur 5.400 milljörðum íslenskra króna. Fyrir sextán mánuðum síðan var fyrir­tækið metið á tíu milljarða Bandaríkja­dala, eða um 1.200 milljarða króna. Verðmæti félagsins hefur því rúmlega fjór­faldast á skömmum tíma.

Xiaomi er svo til óþekkt utan Kína, en hlutdeild þess á heims­markaði er þó gríðar­lega mikil. Dóttur­félög þessa snjallsíma­risa koma meðal annars að því að framleiða ýmsa hluta sem nýttir eru í iPhone síma Apple og einnig síma frá Samsung. Þá eru símar frá fyrir­tækinu vinsælir í Kína og öðrum Asíu-ríkjum.

Í umfjöllun Wall Street Journal segir að ef fyrir­tækinu tekst að afla þess fjár sem að er stefnt, þá muni það verða eitt verð­mætasta nýsköpunar­fyrirtæki á sviði tækni á heimsvísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár