Dæmi um geðrof af völdum Covid-19

Ofsa­fengin viðbrögð ónæmis­kerfisins við veirunni sögð geta valdið skaða á heila­frumum.

Læknar í Banda­ríkjunum, Bretlandi, Spáni og víðar segjast hafa greint tugi tilfella þar sem geðrof virðist með beinum hætti vera rakið til Covid-19 sýkingar. Meðal þeirra sem fyrst vöktu athygli á þessu voru geðlæknar við South Oaks spítalann í New York í Banda­ríkjunum. Spítalinn byrjaði snemma að gefa Covid-sjúklingum kost á sálfræði­meðferð til að takast á við streitu og hræðslu sem margir upplifa. 

Hisam Goueli, læknir við spítalann, segist í samtali við New York Times fyrst hafa veitt því athygli í vor að nokkrir sjúklingar enduðu í alvarlegu geðrofi. „Þegar ég sá fyrsta tilfellið hugsaði ég með mér að mögulega væri tenging á milli geðrofs og kóróna­veirunnar en margt annað gæti komið til. Svo sá ég annað, þriðja og fjórða tilfellið á skömmum tíma. Þá vissum við að eitthvað væri að gerast,“ segir Goueli.

Fólkið upplifði skelfilegar ofsjónir og heyrðu sumir þeirra raddir sem skipuðu þeim að skaða …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár