Google hefur formlega hafið fjárfestingar í nýsköpun í Kína

Hugbúnaðar­risinn Google, sem þekktur er fyrir stirð samskipti við stjórn­völd í Kína meðal annars vegna tölvu­árása á netþjóna Gmail, kynnti um sína fyrstu beinu fjár­festingu í nýsköpunar­fyrirtæki í Kína í dag. Fyrir­tækið heitir Mobvoi og eru stofn­endur þess fyrr­verandi starfs­menn Google, Zhifei Li og Mike Li.

Fyrir­tækið hefur þróað leitar­hugbúnað sem heitir því sérkenni­lega nafni Chumenwewen, en hann er meðal annars sérstak­lega hannaður til að leita að matar­þjónustu á netinu, til dæmis verslunum.

Kína­markaður er stór fyrir Google, enda er talið að snjall­símar í landinu séu að 80 prósent leyti með Android stýrkerfi sem Google fram­leiðir. Fyrir markað með yfir 1,4 milljarða manna, eða um 20 prósent íbúa jarðar, þá eru hags­munirnir gífurlega miklir hjá þeim sem ná traustri stöðu strax við upphaf mikilla breytinga, en slík staða er uppi á ýmsum mörkuðum í Kína sem snúa að þjónustu á netinu.


Google Invests In Mobvoi, Its Android Wear Partner In China https://t.co/EytXQExfDQ


— TechCrunch (@TechCrunch) October 20, 2015

Í tilkynningu Google kemur ekki fram hversu stór fjáfestingin í Mobvoi en talið er að hún sé ekki meiriháttar, að því er fram kemur á vef Quartz. Virði fyrir­tækisins er áætlað um 300 milljónir Bandaríkja­dala, eða sem nemur um 400 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár