Þórhildur Sunna segir Sighvat fara með staðlausa stafi

Formaður þing­flokks Pírata svarar Sighvati Björg­vins­syni, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­manni Alþýðu­flokks­ins. Hún segir að lögin hér á landi um nauð­ung­ar­vistun inni­haldi ekki full­nægj­andi varnir til að hindra mis­notkun.

Sighvatur Björgvinsson, fyrrverandi ráðherra, og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Sig­hvatur Björg­vins­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, og Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata. Mynd: Samsett mynd

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata, for­maður laga-og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs og sér­fræð­ingur í mann­rétt­inda­lögum segir Sighvat Björg­vins­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og for­mann Alþýðu­flokks­ins, fara með rang­færslur í grein sinni sem birt­ist í Morg­un­blað­inu þann 23. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í skrifum hennar á Vísi.is í dag.

Þór­hildur Sunna birti pistil í Stund­inni þann 18. jan­úar síð­ast­lið­inn þar sem hún lýsti þeirri afstöðu að lag­ara­mm­inn um nauð­ung­ar­vistun á geð­deildum sjúkra­húsa á Íslandi væri of veikur til að varna mis­notkun.

Hélt því fram að hún færi með rangt mál

Þór­hildur Sunna tók sem dæmi sögu Aldísar Schram sem hefur haldið því fram að faðir hennar, Jón Baldvin Hanni­bals­son, hafi mis­notað valda­stöðu sína og tengsla­net – ávallt í kjöl­far þess að hún sak­aði hann um kyn­ferð­is­brot – til að fá hana nauð­ung­ar­vi­staða sex sinnum. Inntak pistils­ins var að lög­ræð­is­lögin komi ekki í veg fyrir slíkar aðfarir og að hvetja þing­menn á Alþingi til að styrkja rétt­ar­stöðu nauð­ung­ar­vi­staðra ein­stak­linga.

Sig­hvatur gagn­rýndi pistil Þór­hildar Sunnu harð­lega og hélt því fram að hún færi með rangt mál um lagaum­hverfi nauð­ung­ar­vistana. Hann sagði meðal ann­ars að for­maður þing­flokks á Alþingi Íslend­inga – og vísar þar í Þórhildi Sunnu – sem kýs að gefa af sam­fé­lagi sínu þá mynd að valds­menn geti lokað hvern og einn inni á geð­deild sem þeir telja sig eiga sakir við væri ekki bara vert alvar­legra athuga­semda heldur alvar­legs ámælis.

„Hins vegar er það svo, að Sig­hvatur fer fram með fjölda stað­reynd­ar­villna í grein sinni um lög­ræð­is­lög, jafnt fyrri tíma laga sem núgild­andi. Alvar­leg­asta villan er sú að Sig­hvatur ruglar saman nauð­ung­ar­vistun og lög­ræð­is­svipt­ingu og lögum þar um,“ segir Þór­hildur Sunna í pistli sínum á Vísi.

Þór­hildur Sunna seg­ist hafa rann­sakað íslensku lög­ræð­is­lögin tölu­vert í störfum sínum fyrir Lands­sam­tökin Geðhjálp og geti því frætt Sighvat um að lög­ræð­is­svipt mann­eskja hafi orðið fyrir því að dóm­ari hafi svipt hana rétt­inum til að taka sjálf­stæðar ákvarð­anir í eigin lífi og skipað lög­ráða­mann til að taka ákvarð­anir fyrir hana. Sá geti meðal ann­ars ákveðið að vista við­kom­andi ein­stak­ling á stofnun gegn vilja sínum.

„Nauð­ung­ar­vistun þýðir hins vegar að sjálf­ráða mann­eskja er vistuð á stofnun gegn vilja sínum til að fá með­ferð við alvar­legum geð­sjúk­dómi. Dómari þarf ekki og hefur aldrei þurft að koma að slíkum beiðnum, sam­kvæmt íslenskum lögum,“ segir hún.

Yfirvöld í flestum lýðræðisríkjum nýta nauðungarvistun sem neyðarúrræði

Þór­hildur Sunna bendir á að yfir­völd í flestum lýð­ræð­is­ríkjum nýti nauð­ung­ar­vistun sem neyð­ar­úr­ræði fyrir mann­eskjur sem vegna veik­inda sinna eru hættu­legar sjálfum sér eða öðrum. Í lög­ræð­is­lögum Dan­merkur, Skotlands og Noregs sé það enda tryggt að nauð­ung­ar­vistun megi ein­ungis beita í neyð­ar­til­fellum þegar önnur úrræði hafa verið reynd eða eru ómögu­leg.

Hún segir jafn­framt að þessi lönd geri einnig þá grund­vall­ar­kröfu að beiðni um nauð­ung­ar­vistun fylgi lækn­is­vott­orð tveggja óháðra lækna með sér­þekk­ingu í geð­heil­brigði, sem eru sam­mála um að líf við­kom­andi og heilsa sé í húfi. Þessar laga­kröfur lág­marki hætt­una á að sjálf­ráða fólk sé nauð­ung­ar­vi­stað, nema það sé bráð­nauð­syn­legt af lækn­is­fræði­legum ástæðum og síð­asta úrræði.

Þór­hildur Sunna telur að lög­ræð­is­lögin á Íslandi geri ekki þessar lág­marks­kröfur og að þau hafi verið verri í ráð­herra­tíð Sighvats. Þá, og reyndar allt til 2015, hafi það verið dóms­mála­ráðu­neytið sem tók ákvarð­anir um áfram­hald­andi nauð­ung­ar­vist­anir, og til 1. jan­úar 1998 hafi ráðu­neytið getað lagt fram slíka beiðni að eigin frum­kvæði.

„Eins og umboðs­maður Alþingis hefur bent á þá var víð­tekin venja að halda ein­stak­lingum lengur en þá 15 sól­ar­hringa sem lög um nauð­ung­ar­vist­anir heim­il­uðu. Tíðk­að­ist þá jafnan sú fram­kvæmd að sótt var um sjálf­ræð­is­svipt­ingu við­kom­andi og þeim haldið innan stofn­unar, án dóms og laga, á meðan slík umsókn velkt­ist um í kerf­inu,“ segir hún í grein sinni.

Lögin innihalda ekki fullnægjandi varnir til að hindra misnotkun

Þór­hildur Sunna segir Sighvat leggja sér orð í munn þegar hann segir hana stað­hæfa „að valds­menn geti lokað hvern og einn inni á geð­deild, sem þeir telja sig eiga sak­ir við.“

Hún segir að auð­vitað sé það ekki svo að hvaða ráða­maður sem er geti látið nauð­ung­ar­vista fólk án til­efnis og jafn­vel til að koma höggi á póli­tíska and­stæð­inga sína. „En að valda­maður eins og Jón Baldvin Hanni­bals­son hafi getað fengið dóttur sína nauð­ung­ar­vi­staða að ósekju í þeim til­gangi að þagga niður í henni, og það margoft, er alls ekki úti­lokað miðað við þágild­andi og núgild­andi lög um nauð­ung­ar­vistun.“

Þing­flokks­for­maður Pírata telur einn þol­andi vera of mikið, sem án nokk­urs til­efnis ann­ars en að hafa greint frá ofbeldi eða kúgun verði fyrir því að áhrifa­mik­ill ein­stak­lingur sem braut á henni beiti þessu kerfi gegn henni og ræni hana ærunni. Þór­hildur Sunna segir að þetta valdi því að mann­eskjan sem brotið er á sé sprautuð niður, deyfð og bæld.

„Lögin okkar kom­ast ekki nálægt því að inni­halda full­nægj­andi varnir til að hindra mis­notkun á þessu ferli. Óskandi væri að Sig­hvatur Björg­vins­son ein­beitti sér að því að hvetja okkur til dáða sem viljum breyta þessum ólögum, frekar en að ráð­ast að mér með ómerki­legri varn­ar­ræðu fyrir gamlan flokks­fé­laga og vin,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár