Jobs-veldið enn risavaxið

Laurene Powell Jobs, eftir­lifandi eiginkona Steve Jobs, stofnanda Apple, er fjórða ríkasta kona heims samkvæmt lista Forbes. Eignir hennar eru metnar á 15,3 milljarða dala, eða sem nemur um 1.700 milljörðum króna. Það er upphæð sem nemur tæplega einni árlegri lands­framleiðslu Íslands á ári.

Helstu eignir frú Jobs eru bundnar í eignar­hlutum í Apple og Disney. Hún er stærsti einstaki eigandi Disney í gegnum sjóðinn The Laurene Powell Jobs Trust en hluturinn var áður á nafni Steve Jobs. Þá situr hún í stjórn fyrir­tækisins Ozy Media, og einnig í söfnunar­sjóðum Stanford háskóla.

Jobs, sem er lögfræðingur að mennt, er meðal helstu stuðnings­manna Hillary Clinton og hefur lagt háar fjárhæðir til undir­búnings forseta­framboðs hennar í gegnum Ready for Hillary sjóðinn. Samtals hafa safnast sex milljónir dala í þann sjóð, eða sem nemur ríflega 700 milljónum krónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár