Stórauka uppbyggingu á húsnæði fyrir fatlaða

Stjórn­völd og sveitar­félög taka saman höndum um aukna uppbyggingu húsnæðis fyrir fatlaða.

Þorsteinn Víglundsson, ráðherra félags- og húsnæðismála
Þor­steinn Víglunds­son, ráð­herra félags- og hús­næð­is­mála Mynd: Birgir Þór Harðarson

Samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra, Jón Gunnarsson, félags- og jafnréttis­mála­ráðherra, Þorsteinn Víglundsson, og formaður og framkvæmda­stjóri Sambands íslenskra sveitar­félaga hafa undir­ritað vilja­yfirlýsingu um framlög úr fasteigna­sjóði Jöfnunar­sjóðs sveitar­félaga vegna fasteigna í þágu fatlaðs fólks.

Samkvæmt vilja­yfir­lýsingunni verður fasteigna­sjóðnum nú falið varanlegt hlutverk til jöfnunar á aðstöðu sveitar­félaga á þessu sviði með greiðslu framlaga „til uppbyggingar fasteigna sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk með miklar og sértækar stuðnings­þarfir.“

Kemur fram í vilja­yfir­lýsingunni að nái laga­breytingarnar fram að ganga muni fasteigna­sjóður veita allt að 325 milljónum króna til verkefna á þessu sviði þegar á þessu ári.

Þetta kemur fram í frétta­tilkynningu frá stjórn­völdum sem birt var í gær.

Fasteigna­sjóði Jöfnunar­sjóðs sveitar­félaga var komið á fót í tengslum við yfir­færslu á málefnum fatlaðs fólks frá ríki til sveitar­félaga 1. janúar 2011.

Sjóðurinn tók þá yfir fasteignir í eigu ríkisins sem nýttar höfðu verið í þjónustu við fatlað fólk og hefur hlutverk hans verið að tryggja sem jafnasta aðstöðu sveitar­félaga með því að leigja eða selja þeim fasteignirnar til slíkra afnota.

Samgöngu- og sveitar­stjórnar­ráðherra, Jón Gunnarsson, mun í upphafi þings í haust leggja fram frumvarp til laga sem felur í sér nauðsynlegar breytingar á lögum um tekju­stofna sveitar­félaga til að styðja breytt hlutverk fasteigna­sjóðsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár