Lítil en samt stór bók eftir Nóbelsverðlaunahafa ársins

Nú má vona að Nóbels­verð­launin verði til þess að fleiri fram­úr­skar­andi verk Annie Ernaux reki á fjörur íslenskra les­enda.

Bók

Stað­ur­inn

Höfundur Annie Ernaux Þýðandi: Rut Ingólfsdóttir
Ugla
Gefðu umsögn

Því var almennt tekið af ánægju þegar til­kynnt var nú í haust að franski rit­höf­und­ur­inn Annie Ernaux hlyti Nóbels­verð­launin í bók­menntum 2022. Ernaux (f. 1940) nýtur enda virð­ingar fyrir verk sín sem dansa á mörkum skáld­skapar og ævi­sagna en ein­stakt lag hennar á að vinna með hið per­sónu­lega minni var einmitt til­tekið í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar. Í bók­inni Stað­ur­inn, sem kom út á íslensku síð­ast­liðið vor í þýð­ingu Rutar Ing­ólfs­dóttur og var nýverið end­ur­prentuð, krist­all­ast öll sterk­ustu höf­und­ar­ein­kenni Ernaux. Þessi stutta en inni­halds­ríka saga sem fyrst kom út á frum­mál­inu 1983 er byggð á lífs­hlaupi föður höf­undar og hverf­ist auk þess um tengsl föður og dóttur. Einkar fín­legum dráttum dregur Ernaux upp mynd af hæg­látum manni og feðgina­sam­bandi sem gliðnar um leið og kyn­slóða- og stétta­bilið eykst.

Konan sem segir okkur sög­una er með­vituð um eigið hlut­verk og glímuna við að koma slíkri frá­sögn til skila, þá list að stað­setja …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár