Aðstoðarmaður utanríkisráðherra skipaður varaframkvæmdastjóri Uppbyggingarsjóðs EES

Borgar Þór Einarsson, sem verið hefur aðstoðar­maður Guðlaugs Þórs Þórðar­sonar frá árinu 2017, var tilnefndur sem vara­framkvæmda­stjóri Uppbyggingar­sjóðs EES af íslenskum stjórn­völdum. Hann tekur við starfinu af fyrr­verandi formanni Samfylk­ing­ar­innar.

Borgar Þór Einarsson.
Borgar Þór Ein­ars­son. Mynd: Aðsend

Borgar Þór Einarsson, aðstoðar­maður Guðlaugs Þórs Þórðarssonar utan­ríkis­ráðherra, hefur verið skipaður til að taka við stöðu vara­framkvæmda­stjóra Uppbyggingar­sjóðs EES í Brussel þann 1. janúar næst­komandi. Stjórn sjóðsins tók ákvörðun um ráðninguna eftir tilnefningu íslenskra stjórn­valda. Borgar Þór tekur við stöðunni af Árna Páli Árnasyni, fyrr­verandi formanni Samfylkingarinnar, sem hefur verið í starfinu síðan 2018. Hann var skipaður í stjórn Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) til næstu fjög­urra ára í síðustu viku.

Borgar Þór mun fara með samskipti EFTA-ríkjanna í Evrópska efnahags­svæðinu; Íslands, Noregs og Liechtenstein, við viðtöku­ríki sjóðsins í Suður- og Austur-Evrópu.

Hann er hæstaréttar­lögmaður en frá janúar 2017 hefur hann starfað sem aðstoðar­maður Guðlaugs Þórs. Á árunum 2003-2004 var hann aðstoðar­maður menntamála­ráðherra.

Markmið Uppbyggingar­sjóðs EES er að draga úr efnahags­legum og félags­legum ójöfnuði á Evrópska efnahags­svæðinu og stuðla að eflingu tvíhliða samstarfs milli EES/EFTA-ríkjanna og viðtöku­ríkjanna fimmtán: Búlgaríu, Eistlands, Grikk­lands, Kýpur, Lettlands, Litáens, Möltu, Portúgal, Póllands, Rúmeníu, Slóvakíu, Slóveníu, Króatíu, Tékklands og Ungverja­lands.

Í tilkynningu á vef utan­ríkis­ráðuneytisins segir að Borgar Þór hafi lokið embættis­prófi í lögfræði frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2004 með áherslu á þjóðarétt. „Hann hefur víðtæka reynslu af lögfræði- og lögmanns­störfum í alþjóð­legum verkefnum og hefur meðal annars flutt mál fyrir EFTA-dómstólnum. Borgar Þór var sjálfstætt starfandi lögmaður frá 2010 sem eigandi hjá lögmanns­stofunni OPUS og síðar CATO en þar áður starfaði hann sem lögfræðingur í Lands­bankanum og löglærður fulltrúi á lögmanns­stofunni LEX. Hann var vara­formaður Lögmanna­félags Íslands 2012–2013.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár