Vilja að Youtube fjarlægi 20 þúsund lög eða borgi 127 milljarða króna

Fulltrúar nokkurra af stærstu tónlistar­manna sögunnar hafa sett saman hóp sem gengur undir nafninu Global Music Rights og krefst þess að Youtube fjarlægi þúsundir laga sem hefur verið upphlaðið á vefinn þar sem Youtube hafi ekki leyfi til að deila tónlist þeirra. Verði Youtube ekki við beiðninni ætlar hópurinn að krefjast 127 milljarða króna í bætur.

Frá þessu er greint í frétt á vef Time.

https://www.youtube.com/watch?v=y6Sxv-sUYtM

Pharell, The Eagles og John Lennon


Á meðal þeirra sem eru í hópnum eru aðilar sem gæta hags­muna Pharell Williams, The Eagles, Chris Cornell, John Lennon og Smokey Robinson. Það er mat hóps­ins að Youtube skorti leyfi fyrir um 20 þús­und lögum sem hægt er að hlusta á í gegnum vef­inn.

https://www.youtube.com/watch?v=DVg2EJvvlF8

Google, sem á Youtube-vefinn, hefur hins vegar neitað að verða við kröfum hópsins og segist víst vera með réttu leyfin til að spila umrædd lög. Fyrir­tækið ætlar því ekki að fjarlægja tónlistina af Youtube. Global Music Rights-hópurinn hefur svarað til baka og segir að ef tónlistin verði ekki fjarlægð muni hann stefna Youtube til greiðslu á einum milljarði dala, um 127 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár