Þeir 80 ríkustu eiga meira en fátækari helmingur mannkyns

Samkvæmt rannsókn mannúðar­samtakanna Oxfam eiga ríkustu 80 einstaklingarnir í heiminum meira en fátækari helmingur mann­kynsins. Frá þessu var greint í yfir­lýsingu frá Oxfam í morgun sem breska ríkis­útvarpið BBC gerði grein fyrir, en rann­sóknin, sem er framkvæmd er árlega, þykir með áreiðanlegustu mæli­stikum á skiptingu auðs í heiminum.

Bilið milli ríkra og fátækra hefur verið að aukast jafnt og þétt, einkum frá árinu 2010. Á því ári þurfti 388 ríkustu einstaklingana til þessa að ná upp að heildar­eignum fátækari hluta heimsins. Árið 2009 átti eitt prósent ríkustu íbúanna 44% alls auðs, 48% 2014 og því er spáð að þessi hópur fólks eignist meira en helming alls auðs fyrir lok næsta árs.

Winnie Byanyim, framkvæmda­stjóri Oxfam, verður þátt­takandi í umræðum um rann­sóknina á World Exonomic Forum í Davos í Sviss 21. janúar næst­komandi, þar sem stjórn­málamenn og fjár­festar ræða um stöðu mála í heiminum á árlegum þriggja daga fundi. Hún segir þessar upplýsingar vera sláandi, og nauðsynlegt sé að ræða um þessa misskiptingu á auðnum í heiminum. Árið 2009 átti eitt prósent ríkustu íbúanna 44% auðsins, 48% 2014 og því er spáð að þessi hópur fólks eignist meira en helming alls auðs fyrir lok næsta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár