Hillary Clinton hafði Bernie Sanders undir

Hillary Rodham Clinton, vinsælasti forseta­fram­bjóðandi Demókrata­flokksins í Banda­ríkjunum samkvæmt skoðana­könnunum, þótti standa sig best fram­bjóðenda í fyrstu kapp­ræðnum milli forseta­efna flokksins í gær. Fimm fram­bjóðendur voru á sviði CNN sjónvarps­stöðvarinnar og beindist athyglin einkum að Clinton og vinstri manninum Bernie Sanders, sem hefur víða mælst með mikið fylgi í skoðana­könnunum.

Fréttir bandarískra fjölmiðla um kappræður gærkvöldsins hafa sömu sögu að segja: Clinton stóð sig best fram­bjóðenda og náði að koma höggi á helsta keppinaut sinn, Sanders. Frétta­miðillinn Vox segir að Clinton hafi þaggað niður gagnrýnis­raddir og hafi sýnt þá hlið sem stuðnings­menn biðu eftir. Frétta­miðillinn Quartz segir Hillary hafa sigrað keppinauta sína auðveldlega og spyr í umfjöllun sinni hvort Sanders vilji raun­verulega bjóða sig fram fyrir Demókrata eða hvort hann vilji einfald­lega koma stefnu­málum sínum á framfæri. Þá skrifar Nate Silver, ritstjóri frétta­síðunnar FiveThirtyEight, að fjöl­miðlar hafi vanmetið kosninga­baráttu Clinton til þessa. Honum þykir þá að frammistaða hennar í gær sé öllu ofmetin. Frétta­skýrendur FiveThirtyEight gáfu Clinton engu að síður einkunnina A- fyrir frammistöðu sína í gær en Bernie Sanders fékk B. Aðrir, þ.e. Martin O'Malley, Jim Webb og Lincoln Chafee, þóttu standa sig mun verr.

Í umfjöllun New York Times um kapp­ræðurnar segir að Clinton hafi með ágengum hætti velt upp spurningum um gildi Sanders, skoðanir hans og afstöðu sem þingmaður. Hún sakaði hann meðal annars um veika stefnu í málum er varða byssu­löggjöf Banda­ríkjanna. Árið 2005 kaus Sanders með frumvarpi sem veitti byssu­fram­leiðendum friðhelgi fyrir lögsóknum gegn fórnar­lömbum skotárása. Sér til varnar sagði Sanders málið hafa verið flóknara en svo.

Sanders segist vera demókratískur sósíal­isti, hann er á vinstri væng bandaríska stjórnmála­rófsins og talar fyrir sterku velferðar­kerfi, háum sköttum og að komið verði í veg fyrir auðsöfnun. Sanders hefur í þessum efnum mært norrænna módelið og minntist í gær sérstak­lega á það hvernig málum er háttað í Danmörku og Svíþjóð. Þegar rætt var um kapítalisma og sósíalisma í kapp­ræðunum í gær sagði Clinton: „En veistu hvað? Við erum ekki Danmörk. Ég elska Danmörku. Við erum Bandaríki Norður-Ameríku.“ Brotið má sjá hér að neðan.


Here's a wrap-up of the #DemDebate — in gifs and Vines http://t.co/RTRf7q76wy via @caseycapachi https://t.co/Vi7H7gFIWY


— CNN Politics (@CNNPolitics) October 14, 2015

Kominn með nóg af tölvupóstsmálinu

Það mál sem helst hefur reynst Clinton erfitt í kosninga­baráttunni til þessa er hið svokallaða „tölvupóstsmál“ en upp komst að hún notaði einka­netfang sitt þegar hún var innan­ríkis­ráðherra á árunum 2009 til 2013. Málið hefur fengið mikla athygli í fjöl­miðlum og pólitískir andstæðingar hafa nýtt sér það óspart. Þegar spurt var um tölvu­póstana í gær fór þó Sanders aðra leið en ýmsir aðrir hefðu gert og sagði kjósendur komna með nóg af málinu. Meira lægi á að ræða mikilvæg málefni eins og fátækt og ójöfnuð.



Bernie Sanders: "Enough of the emails!"Bernie Sanders just said what we were all think­ing about Hillary Clinton's email controversy. #Dem­Debate

Posted by Quartz on Tuesday, 13 October 2015

Hér að neðan má sjá nokkrar færslur af samfélags­miðlunum sem birtust á meðan kapp­ræðurnar stóðu yfir í gærkvöldi.


What happens in Vegas...is I watch @HillaryClinton prove she's the most qualified candidate for POTUS. #ImWithHer pic.twitter.com/ax1d56Whwt


— Bill Clinton (@billclinton) October 14, 2015
Sorry, there is no STAR on the stage tonight! — Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 14, 2015


Let's do this. #DemDebate pic.twitter.com/y31OQXaa9b


— Hillary Clinton (@HillaryClinton) October 14, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár