Karolina Fund: Kommentakerfið spil um oft ósmekklega fyndni

Óli Gneisti Sóleyjarson er þjóð­fræðingur og bókasafns- og upplýsinga­fræðingur. Hann hefur reynt ýmislegt um ævina en segist fyrir utan fjöl­skylduna vera hvað einna stoltastur af því að hafa stofnað og rekið Rafbóka­vefinn í sjálfboða­vinnu. Óli Gneisti er að hópfjármagna nýtt spil á Karolina Fund sem heitir "Kommenta­kerfið". Kjarninn tók Óla Gneista tali og forvitnaðist um verkefnið hans.

https://vimeo.com/136726501

Mjög spenntur fyrir hópfjármögnun


Hvaðan kom hug­myndin að spil­inu "Kommenta­kerfið"?

"Ég hef áður fengið hugmyndir að spilum en aldrei framkvæmt. Það sem er nýtt núna er tilkoma Karolina Fund. Ég er mjög spenntur fyrir svona hópfjármögnun og hef oft stutt slíkt. Ég gæti sjálfur fjár­magnað litla prentun af spilinu en með forsölu og styrkjum get ég allavega tvöfaldað magnið sem ég prenta. Það er rétt að benda á að maður verður ekki áskrifandi af peningum með því að fara í hópfjármögnun. Maður verður að vinna grunn­vinnuna vel.

Ég er einn skráður fyrir Kommenta­kerfinu en ég er með ótal hjálpar­kokka sem hafa aðstoðað mig við hitt og þetta. Allt frá fólkinu sem gaukar að mér athuga­semdum og fyrir­sögnum yfir í þá sem svara heimsku­legum spurningum mínum um bókhald og rekstur.

Hugmyndin um Kommenta­kerfið kom ekki af himnum. Ég hafði spilað spilið Cards Against Humanity og þótt það skemmtilegt en um leið fannst mér vanta íslenska útgáfu. Ég ákvað að prufa sjálfur að þýða. Það gekk ekkert. Húmorinn í Cards Against Humanity felst í því að búa til ósmekk­lega fyndnar setningar með eyðu­fyllingum og íslenskan hentar bara ekkert vel í það. Ég pældi aðeins meira í þessu og það var eitthvað við hugmyndina um ósmekk­legan húmor sem leiddi huga minn að athugasemda­kerfum vefmiðlana. Þá datt mér í hug að í stað eyðu­fyllinga þá gæti maður verið með spil með fyrir­sögnum og athuga­semdum."

Ágúst Þorvaldsson í Nexus. Hægt að skoða Kommenta­kerfið þar.

Margar athugasemdirnar raunverulegar


Hvernig virkar spilið?

Ágúst Þorvaldsson í Nexus. Hægt að skoða Kommentakerfið þar.
Ágúst Þor­valds­son í Nexus. Hægt að skoða Kommenta­kerfið þar.

"Spilið virkar í stuttu máli þannig að hver spilari er með 10 "komment" á hendi. Í hverri umferð er einn ritstjóri sem leggur út "fyrirsögn". Hinir spil­ararnir leggja síðan "komment" í púkkið. Ritstjórinn velur kommentið sem honum þótti skemmtilegast í samhenginu og spilarinn sem lagði það út fær stig."

Hvaðan kom efniviðurinn í spilið?

"Margar af athugasemdunum eru raun­verulegar. Reyndar er það augljós­lega þannig að sumar voru skrifaðar af fólki sem var augljós­lega að grínast en án samhengisins líta þær út fyrir að vera skrifaðar af fólki sem er úr öllum tengslum við raun­veruleikann. Önnur komment eru álíka rugluð en skrifuð af fólk sem er fullkomin alvara. Það er líka stórkost­legur sparnaður að þurfa ekki að prófarka­lesa athugasemdirnar því staf­setningar­villur og óhefðbundin nálgun á greina­merkja­notkun gerir þetta bara raun­verulegra.

Í vali mínu á athuga­semdum þá reyni ég að ná þeim sem eru fyndin en ekki of andstyggileg. Spilið snýst náttúru­lega um fyndni. Oft ósmekk­lega."

Andri Þór Sturluson í Spila­vinir. Kommenta­kerfið er til sýnis í versluninni.

Gæti orðið gagnleg samræða um umræður á netinu


Hvað eru mörg "komment" að finna í spil­inu?

Andri Þór Sturluson í Spilavinir. Kommentakerfið er til sýnis í versluninni.
Andri Þór Sturlu­son í Spila­vinir. Kommenta­kerfið er til sýnis í versl­un­inni.

"Þegar ég ákvað að fara í hópfjármögnun þá ákvað ég að finna leiðir til að verðlauna þá sem taka þátt í söfnuninni. Í grunn­spilinu eru 400 spjöld, 320 komment og 80 fyrir­sagnir en ef ég næ viðbótar­takmörkum mínum þá er hægt að fjölga þeim. Þannig þýðir hærri upphæð ekki bara að peningarnir komi til mín heldur fá kaupendurnir eitthvað aukalega."

Fyrir hvaða aldurshóp er "Kommenta­kerfið" hugsað?

"Ég hélt að ég þyrfti að setja hátt aldurs­takmark á spilið en síðan spilaði ég það með litlu frænkum mínum og endaði með að setja viðmið um að það sé fyrir þrettán ára og eldri. Yngri krakkar geta auðvitað spilað það en þá mæli ég með að full­orðnir fylgist með. Þá held ég að þetta geti bara verið gagnleg samræða um umræður á netinu. Ég komst líka fljótt að því að spilið virðist henta öllum hópum sem vilja hlæja saman."

Hér er hægt að skoða verkefnið nánar og styrkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár